- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / V. Smágreinar Dýrafræðislegs efnis, Ævisa A o. fl. /
XCVI

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— XCVI—

•arlega, reið hann upp á Nýjabæjarfjall og ofan um
Villinga-dal (Torfufellsdal) til Eyjafjarðar. Var þessi vegur
sjaldfar-inn og erfiður, en bæði var, að Jónas langaði til að kynnast
honum og hálendinu, og svo langaði hann til að skoða betur
rúna-steininn á hinu svo-nefnda Völuleiði í Leyningshólum, sem hann
hafði athugað nokkuð áður, en árangurslaust. En rúnirnar á
steininum reyndust honum með öllu ólæsilegar, enda hafa þær
aldrei síðan verið ráðnar. En annað var þó miklu verra; hann
fékk versta veður á Nýjabæjarfjalli og kom holdvotur í
gisting-arstað, að Jórunnarstöðum (sbr. II. b., bls. 32). Mun hann þá
þegar hafa tekið veiki af ofkælingu, en haldið þó áfram næsta
dag út að Saurbæ, Hvassafelli og Miklagarði; þaðan stytti hann
sér leið heim og hélt fram Skjóldal, upp í Kambskarð og ofan
Þverárdal að Steinsstöðum. Varð hann nú mjög veikur af vosi
og þreytu, „og sá tvísýni á lífi mínu og orti iðrunarsálm", segir
hann í gamni í bréfi cil Konráðs. Hann fékk illkynjaða
háls-bólgu með hitasótt, og átti hann í þessum veikindum í 3 vikur.
Sá hann nú, að ekki myndi geta orðið meira úr ferðalögum að
sinni, enda var ferðaféð nú þrotið. Hann hafði ætlað að fara á
Vestfjörðu, en úr því gåt alls ekki orðið. Hann langaði iil að
rannsaka í staðinn hálendið á milli Eyjafjarðar og
Skagafjarð-ar, norðan Hörgárdalsheiðar; hann hafði orðið að hætta við
það vegna snjókomu sumarið 1837; en nú fór aftur á sömu leið;
hann varð enn að hverfa þar frá sakir hrakviðra og snjóa.

Nú hafði hann fengið þá fregn að sunnan, að þeir
Steenstrup og Schythe hefðu komið til Reykjavíkur um sumarið og
síðan ferðazt um Suðurland, en ætluðu að vera um kyrt í
Reykjavik komandi vetur. Hann hafði búizt við að fara utan um
haustið (sbr. II. b., bls. 27, efst), en nú tók hann það ráð, að
fara suður til Reykjavíkur og setjast þar að einnig næsta vetur.
Skrifaði hann þeim Finni (29. Sept.) og Konráði (4. Okt.) þetta
(II. b., bls. 27—33). E. fr. skrifaði hann Forchhammer, og bað
hann útvega sér eins árs styrk í viðbót úr sjóðnum til almennra
þarfa; hafði hann þegar orðið að taka 50 dali að láni og gert
ráð fyrir, að þeir gætu orðið endurgreiddir bráðlega í Höfn,
eins og hann skrifaði Finni.

Skírnarfonturinn, sem Bertel Thorvaldsen gaf og Jónas
rit-aði um í IV. árg. Fjölnis, var nú kominn til dómkirkjunnar í
Reykjavik, og hafði Jónas frétt það. Minntist hann nú þess, er
hann hafði sagt í kveðjunni til Thorvaldsens fyrir ári síðan, og
gerði nú bragarbót: „Þökk Islendinga fcil Alberts Thorvaldsens"
XI. b., bls. 66—69, m. aths.) og sendi til Finns Magnússonar 3.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:53 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/5/0108.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free