Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
_ xcv —
65, m. aths.), ef til vill á hestsbaki. Sömuleiðis gerði hann
ein-hvern næstu daga erindið um Fremri-náma, þegar hann var að
kanna þá (I. b., bls. 65—66, m. aths.). Yfirlit yfir alla ferðina
þetta sumar er einnig að finna i III. b., bls. 269—73, og auk
þess veita bréf hans frá sama tima, til Konráðs og Finns
Magn-ússonar (II. b., bls. 23—33), margar upplýsingar um ferðir hans
og framkvæmdir. Hann skrifaði einnig Forchhammer um
jarð-fræðislegar athuganir, sem hann hafði gert, en bað bréf er að
öðru leyti ókunnugt. Hann kveðst (III. b., bls. 271) hafa fengizt
við rannsóknirnar á námunum og Kröflu og gosstöðvunum þar
þá daga, sem eftir voru af Júli-mánuði, 13. og 14. viku sumars;
fékk jarðnafar og lét gera boranir í 4 daga o. s. frv. Þegar
hann var ekki við námana, var hann heima við í Reykjahlíð.
Kynntist hann þá fjölskyldunni, og varð beim Hólmfríði, elztu
dóttur séra Jóns, vel til vina; hún var þá á 18. árinu (f. 9. Nóv.
1821) og þótti lagleg og myndarleg stúlka. Sagt er, að Jónas
hafi siðan skrifað henni nokkrum sinnum og hún geymt bréf
hans til elliára, en allt er það óvist. Minntist Hólmfriður
Jón-asar jafnan með vinsemd.*)
Þegar Jónas hafði lokið rannsóknum sinum i
Mývatnssveit-inni og á námunum, hélt hann aftur til Húsavikur og
rannsak-aði bar enn betur en áður brennisteinsverkið allt og
framleiðsl-una. Þaðan fór hann aftur út á Tjörnes og rannsakaði
Hall-bjarnarstaðakamb og Tungubakka; tók hann þar foraar
nátt-úruminjar, flutti þær til Húsavíkur og sendi svo þaðan til
Hafnar. Síðan hélt hann heimleiðis til Steinsstaða, fór fram
Fnjóska-dal og rannsakaði surtarbrand i Illugastaðahnjúki, en reið síðan
Bildsárskarð til Eyjafjarðar og kom heim 15. Agúst. Dvaldi
hann fáa daga heima, áður en hann lagði upp í nýja ferð. Bjó
hann sig nú betur út en áður með hesta og fylgdarmann, og hélt
til Skagafjarðar. Nokkrir bændur þar höfðu fyrir fáum árum
sótt til fjármálastjórnarinnar um styrk til að leita þar eftir
kolum, og hafði Forchhammer nú minnzt þess og beðið þá
Steenstrup og Schythe um að athuga kolalögin, sem ættu að vera í
Skagafirðinum. Fór Jónas nú að rannsaka þetta og þá staði,
þar sem surtarbrandur hafði komið í ljós. Framkvæmdi hann
þessar rannsóknir, og þar á meðal i Illagili á Tinnárdal, þar
sem var stórum hættulegt að koma þeim við. Ur Austurdal, inn-
*) Sjá ISunni, XII., 282. — Hólmfríður giftist séra Jóni
Sveins-syni, presti aö Hvanneyri 1 Siglufirði (síöar atS Mælifelli); hún
varS háöldruíS, andaðist 19. Jan. 1915.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>