Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— XCVIII —
Nú víkur sögunni til Hafnar. Þegar Finnur Magnússon íékk
bréf Jónasar frá 29. Sept., sá hann, að ekki mátti við svo búið
sitja. Hann hefir sennilega grennslazt eftir því, hvort
Forchhammer sækti um framhald styrks úr sjóðnum til almennra
þarfa, og komizt að raun um, að ekki myndi mega vænta þaðani
styrks svo brátt. Finnur tók sig þá til og skrifaði
fjármála-stjórninni fyrir hönd Jónasar, skýrði frá rannsóknum hans,.
ferðalögum, starfi og fyrirætlunum, og sótti um 100 dala styrk
handa honum. Brást stjórnin vel við og veitti enn 100 dali 7..
Des. (4 dögum eftir andlát Friðriks 6.) upp á væntanlegt
sam-þykki konungs (Kristjáns 8.). Þegar Jónas skrifaði Finni
Marz (II. b., bls. 33—35), vissi hann ekki enn um þetta, og því
nefndi hann í því bréfi, hvort stjórnin myndi ekki vilja styrkja
sig þá, það ár, eins og hið siðasta. Finnur komst ekki til að svara
Jónasi fyr en 1. Mai. Gåt hann þá sagt honum þau gleðitíðindi,.
að stjórnin hefði veitt honum þessa 100 dali í Des. og enn
:?rem-ur aðra 100 dali um vorið. Er svo að sjá, að stjórnin hafi veitt.
þá (7. Apr.) eftir meðmælum Forchhammers í bréfi hans 11.
Marz til Jónasar Collins stjórnarfulltrúa, þar sem hann talaði
um ferðir þeirra Steenstrups og Schythe á komandi sumri og
stakk upp á, að þeir skiptu með sér verkum og ferðuðust hvor
fyrir sig. — Þeim kom ekki vel saman, og munu hafa látið
Forchhammer vita, að þeir vildu helzt skilja, — eins og einnig varð.*)
— Forchhammer sótti ekki um framlenging á styrk úr sjóðnum
til almennra þarfa, en sennilega hefir það verið samkvæmt
bend-ingu frá honum, að Kristján Kristjánsson, sem þá var
aðstoðar-maður í fjármálaráðuneytinu, gerði það 11. Febrúar, enda hafði
Jónas skrifað Kristjáni 4. Okt. frá Akureyri, og sent honum
um-boð til að veita styrknum móttöku, ef hann fengi hann (II b.,
bls. 33). Sendi Kristján umsóknina undir nafni Jónasar, stílaða
til konungs, og bréf frá sér með. Sjóðstjórnin sendi umsóknina
til Reinhardts prófessors til umsagnar 13. Marz, og lét hann
ekki standa á svari; það er dagsett 15. s. m. Mælti hann
ein-dregið með veitingunni; kvaðst hafa ætlað að fara að sækja um
styrkinn sjálfur handa Jónasi. Gerði hann grein fyrir
dýra-fræðisritgerðum hans, sendingu náttúrugripa,
rannsóknarferð-um og fyrirætlunum. Mánuði síðar, 15. Apr., réð sjóðstjórnin
konungi til að veita Jónasi styrkinn, og mun hann hafa verið
greiddur Kristjáni mjög skömmu síðar, eða hann vitað, að hann
yrði veittur, þvi að hann hefir greitt Jónasi hann 13. Júní í
Reykjavik; þá var Kristján kominn heim þangað frá Höfn. En
*) Sbr. Lovsaml. f. Isl. XII., 24.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>