- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / V. Smágreinar Dýrafræðislegs efnis, Ævisa A o. fl. /
XCIX

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— XCIX —

raunar var styrkveitingarbréfið ekki undirritað af konungi fyr
en 27. Ágúst. Sbr. e. fr. bréf Jónasar og kvittanir, dags. 13.
Júní (II. b., bls. 41—44, m. aths.).

Það var ærið þungbært fyrir Jónas að verða að liggja
veik-ur allan þennan vetur, þungt haldinn og allslaus. Hann hafði
ætlað að hafa ofan-af fyrir sér með kennslu, en að sjálfsögðu
gat lítið orðið úr henni. Bréfin 2. og 4. Marz úil vinanna í Höfn,
Finns Magnússonar og Brynjólfs og Konráðs (II. "b., bls. 33—
36) sýna, hve þjáður hann hefir verið. En lifslöngun og lifsvon
héldu honum furðanlega hressum, og starfsþrá hans bilaði ekki
þrátt fyrir veikindin. í bréfinu til þeirra Brynjólfs og Konráðs
skrifar hann m. a.: „Ég er ofur-lasinn og hefi verið bað, rétt
að kalla, siðan ég kom hingað suður, snemma i Nóvember — ■—
— Ég vona samt, ég lifi af, að minnsta kosti aðra stundina, og
langar raunar til þess líka, mest vegna þess, að ég þykist helzt
of lítið þarft vera búinn að vinna. — — — Aldrei hefir mig
langað eins mikið og núna til að gera eitthvað; svona er
mað-ur!" Hann hefir þá séð stjörnufræðisfyrirlestra Ursins og
þeg-ar farið að hugsa um að leggja bá bók út; kom býðing hans út
2 árum síðar. Rúmum mánuði eftir, að hann skrifaði þeim
Brynj-ólfi og Konráði, sendi hann stjórn Bókmenntafélagsins í
Reykjavik tilmæli um, að það gengizt fyrir því, að haldnar yrðu
dag-bækur yfir veðráttufarið um land allt, sbr. II. b., bls. 36—40,
m. aths.*) Veðurathuganir Jóns Thorstensens voru þá
nýkomn-ar út, og hefir Jónas þegar séð, að meira þyrfti að gera í sömu
átt, ef að verulegu gagni ætti að koma. Tók félagið þessu vel,
sem enn mun skýrt frá nánar, enda var þetta hin þarflegasta
uppástunga.

Hann hafði ekki fengið bréf frá séra Tómasi á
Breiðaból-stað mjög lengi, liklega heilt ár, en nú frétti séra Tómas um
veikindi hans og skrifaði honum einkar-ástúðlegt bréf, reyndi a5
hughreysta hann, bauðst til að borga fyrir hann allt, sem hann
kostaði til bess að fá aftur heilsuna, þvi hann mætti með engu
móti missa hann; einnig bauð hann, að senda honum hesta, ef
hann væri ferðafær austur (Bréf T. Sæm., bls. 256—58). Jónas
skrifaði honum siðan tvö bréf, og þótti séra Tómasi svo vænt um
þau, að hann kvaðst í svari sinu 12. Mai, ekki nýlega hafa fengið
tvö bréf, sem sér þætti vænna um. En nú var heilsa séra Tömasar

*) Frumvarpi ð um veSurbækurnar er aS minnsta kosti
dag-sett 9. April, en í dagbók (bréfaskrá) félagsins er það raunar
tal-iS komiS 6. Okt.; þann dag var loks fundur í félaginu, og er sagt
Í fundargerSinni, aS Jónas hafi þá stungið upp á málinu.

7*

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:53 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/5/0111.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free