- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / V. Smágreinar Dýrafræðislegs efnis, Ævisa A o. fl. /
CI

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— CI —

Jónasi að setjast við það í veikindum sínum, að fara að taka
saman bessa miklu bók.

Heilsufar og aðrar ástæður voru litt uppörvandi fcil
Ijóða-gerðar þennan vetur. C. E. Bardenfleth var nú stiftamtmaður,
og reyndi að gera sér og þeim Steenstrup og Schythe lífið sem
ljúfast með ýmsu móti, sjónleikjum, samkvæmum o. fl.,*) en
Jónas gåt að sjálfsögðu engan þátt tekið í beim gleðskap.
Af-mælis Friðriks konungs 6. var minnzt hátíðlega að vanda 28.
Janúar. Hefði nú Jónas ort afmæliskvæði, hefði hann getað það
fyrir veikindunum, -—- þó að konungur væri þá dáinn, því að lát
hans fréttist ekki fyr en í Apríl um vorið. En um það sama leyti
var Jónas orðinn það hress, að hann kvað bá annað
afmælis-kvæði á dönsku, hið yndisfagra kvæði til Maríu litlu Maack
(sjá I. b., bls. 248—49, m. aths.). Það er skiljanlegt, hvers vegna
hann er svo angurvær og dapuryrtur í síðasta erindinu. —
Jón-as slapp nú samt ekki hjá því að yrkja konungskvæði. Það boð
gekk út, að hinn nýi konungur, Kristján 8. og Amalía drottning,
yrðu kórónuð 28. Júní. Þann dag varð þá að sjálfsögðu að halda
hátíðlegan í Reykjavik, og jafn-sjálfsagt var, að Jónas gerði
veizlukvæðið. Það var prentað og sungið (sjá I. b., bls. .249—50);
er hátíðlegt og alvarlegt um konung og fullt af aðdáun og
fögr-um óskum til drottningar. ■—

En Jónas heyrði ekki veizlusönginn 28. Júní. Um morguninn
hinn 25. lögðu „náttúruskoðararnir" allir af stað í ferðalög sin
Þeir höfðu áður farið smáferðir i nágrenninu, út á
Seltjarnar-nes, út í Viðey, þann 13., heilladaginn, sem Jónas skrifaði Finni
og sendi kvittanir fyrir öllum styrkpeningunum, og tveim
dögum siðar höfðu þeir farið upp á Kjalarnes og upp í Kjós og
umhverfis Esju. Siðan fóru þeir að búast til langferða, og lögðu
af stað 10 dögum síðar, svo sem nú vaj1 sagt. Schythe fór austur
í Hreppa og þaðan sem leið liggur upp með Þjórsá að vestan,
allt upp að Arnarfelli, en siðan yfir á Vatnajökulsveg og um
Hvannalindir austur í Jökuldal, við illan leik. Hann fór svo um
Austfirði um sumarið, en brá sér þaðan norður til
Mývatns-öræfa til að líta á brennisteinsnámana, og síðan hélt hann aftur
til Reykjavíkur; kom þangað 13. September.**) En beir Jónas
og Steenstrup fóru fyrst suður i Krýsuvík til að rannsaka
brennisteinsnámana þar. Höfðu þeir 12 hesta og mikinn farang-

*) Sjá rit Þorv. Thoroddsens, sem áöur hefir veriS getiS, um
þetta o. fl.

**) Sbr. Landfrs. IV., 26 og 54—57; e. fr. II. b. hér, bls. 102—3,
m. aths.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:53 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/5/0113.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free