- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / V. Smágreinar Dýrafræðislegs efnis, Ævisa A o. fl. /
CIII

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— CIII —

■steingjörvinga, en voru svo um kyrt í Hitardal næsta dag (21.).
Síðan fóru þeir vestur að Rauðamel að athuga ölkelduna frægu
■og næsta dag yfir að Breiðabólstað á Skógarströnd. Þaðan gerðu
Jþeir útúrkrók út í Helgafellssveit, fyrst út í Stykkishólm
dag-inn eftir, og athuguðu Drápuhlíðarfjall þann dag (24.; sbr. e. fr.
III. b., bls. 111), og daginn eftir riðu þeir inn að Hofstöðum, en
gistu aftur í Stykkishólmi um nóttina. Næsta dag (sd. 28.) fóru
þeir til baka inn að Breiðabólstað og dvöldust bar daginn eftir
(sbr. III. b., bls. 116), en létu lestina halda áfram inn fyrir
Hvammsfjörð, fóru sjóveg yfir að Staðarfelli daginn eftir, og
voru þar um kyrt næsta dag (29.). Þá kom þangað lestin og
héldu þeir nú áfram ferð sinni um Fellsströnd, Skarðströnd, inn
i Saurbæ og fyrir Gilsfjörð; komu að Garpsdal
laugardags-kvöldið 1. Agúst og voru þar um kyrt daginn eftir, en næsta dag
voru þeir við surtarbrands-athuganir i Múlafjalli. Þá fóru þeir
til Berufjarðar og siðan út að Reykhólum; athuguðu
surtar-brand i Skírdalsbrún á leiðinni. Daginn eftir fóru þeir inn fyrir
Þorskafjörð, yfir Hjallaháls og Ódrjúgsháls að Brekku við
Gufufjörð; næsta dag að Vattarnesi og laugardaginn 8. að
Brjánslæk. Þar var margt að athuga, surtarbrand með
jurta-steingjörvingum o. fl., sbr. III. b., bls. 112, og dvöldust þeir við
það næstu tvo daga. Síðan fóru þeir út undir Haga, en riðu
þaðan Fossheiði til Fossfjarðar, og þaðan um Otrardal til
Bildu-dals, og dvöldu þar um kyrt 1 dag. Þá gerðu þeir enn
útúr-krók, skruppu til Sauðlauksdals og til baka aftur næsta dag
(14.—15. Ag.). Fóru sjóveg yfir Tálknafjörð og Patreksfjörð
báðar leiðir. Um kvöldið og næsta morgun skrifaði Jónas vinum
sinum i Höfn og sagði þeim af ferðalaginu. I bréfinu til Finns
Magnússonar getur hann um liðan sina og segir: „Eg er vonum
skárri til heilsu, en þoli samt ekki vel áreynsluna, enn sem
kom-ið er" (II. b., bls. 44—46). Á meðan þeir voru á Bíldudal og í
Sauðlauksdals-förinni, hafa fylgdarmenn þeirra haldið áfram
með hestana inn fyrir alla fjörðu og út að Rafnseyri, og fóru
þeir Jónas þangað sjóveg frá Bildudal, yfir Arnarfjörð,
sunnu-daginn 16. Ágúst. Daginn eftir brugðu þeir sér út i
Tjaldanes-dal og upp i Tröllakrika, en siðan fóru þeir leiðar sinnar næsta
dag, Rafnseyrarheiði að Botni í Dýrafirði, og þaðan daginn
eftir yfir Glámuheiði að Botni i Mjóafirði. Næsta dag fóru þeir
skemmstu leið fyrir ísafjarðarbotn, yfir Hestakleif, og héldu út
að Arngerðareyri. Þar hvíldu þeir svo hestana daginn eftir, en
brugðu sér sjóveg yfir fjörðinn, fóru yfir i Reykjarfjörð og
skoðuðu hverina á Reykjanesi. Næsta dag héldu þeir áfram^ út
að Ármúla og þaðan daginn eftir, sem var sunnudagurinn 23. Ag.,

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:53 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/5/0115.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free