- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / V. Smágreinar Dýrafræðislegs efnis, Ævisa A o. fl. /
CIV

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— CIV —

út að Stað á Snæfjallaströnd. Næsta dag komust þeir enn með
hestana yfir að Stað í Grunnavík, en þaðan urðu þeir að fara
sjóveg yfir Jökulfirði, að Sléttu. Daginn eftir fóru þeir síðan
sjóveg yfir í Aðalvík,*) og skoðuðu surtarbrand í Grænuhlíð í
leiðinni. Næsta dag fóru þeir gangandi norður að Látrum,**)
og daginn eftir út í Straumsneshlíð, til að skoða þar einnig
surtarbrand. Föstudaginn 28. Ágúst komust þeir allt norður til
Rekavíkur, en þar snéru þeir loksins við og héldu aftur til
Aðalvíkur, og daginn eftir fóru þeir yfir Jökulfirði og alla leið
til Staðar á Snæfjallaströnd. Næsti dagur var sunnudagur og
voru þeir þar bá um kyrt. Áður en þeir lögðu upp næsta morgun,
hripaði Jónas þeim Brynjólfi og Konráði gamanbréfið, sem er í II.
b. á bls. 47. „Þrauka þetta, þó ég sé ekki alheill", segir hann.***)
— Þeir fóru að Ármúla um daginn og næsta dag að LágadaL
Var nú byrjaður September og allra veðra von, enda urðu þeir
að halda kyrru fyrir sökum illviðris næsta dag, þótti ekki
leggj-andi á Steingrímsfjarðarheiði fyr en daginn eftir; þá fóru þeir
að Stað í Steingrímsfirði og næsta dag’ að Húsavík; athuguðu
surtarbrand í Kleifarlæk og Húsavíkurhlíð. Næsta dag skruppu
þeir sjóleiðis yfir á Selströnd og athuguðu Bæjarfell,
Margrét-arfell og Gunnarsstaðagróf, en daginn eftir, sem var
sunnudag-urinn 6. September, fóru þeir að Felli í Kollafirði. Næsta dag
fóru þeir að skoða hina frægu leirtegund, bleikjuna, í
Mókolls-dal, sem mikið hafði verið rætt og ritað um,****) en þaðan fóru
þeir svo um daginn Brekkudal til Gilsfjarðar og allt til Olafs-

*) Sbr. II. b., bls. 60.

**) Þegar Þorv. Thoroddsen feröaöist hér um 47 drum síöarr
sagöi gamall maður, sem mundi eftir komu þeirra Jónasar og
Steenstrups, Þorvaldi frá því, að beir hefðu orðiS aö brímenna
yfir Stakkadalsós, og’ aS Jónas hafi þá ort „Þegar þú kemur þar 1
sveit", o. s. frv., sjá Ferðabók, II., 141—42. Er þaö, þetta síöasta,
vitanlega tilhæfulaust, sjá I. b., bls. 183—84.

***) Þegar Þorvaldur Thoroddsen kom í Aöalvík, eins og á†5ur
var getið, sagði hinn gamli maður honum, aö Jónas hefSi verið
þungur á sér os oftast veriS heima I tjaldi, en Steenstrup hefði
klifraö eins og" köttur upp um öll fjöll; er þaS ekki ólíkleg’t, aS
Jónas hafi orðiö a’S hvlla sig, nieðan þeir dvöldu vi8 tjaldiö, því
aS nógu erfitt hefir fer?5alagiö orðiö honum á daginn, svo
óhraust-ur sem hann var enn eftir hina löngu og þungu legu um veturinn.
Sbr. einnig II. b., bls. 61 (,,Jeg kunde desværre ikke bekæmpe en
vis Eftersmag af min fatale Sygdom"). ■— En þaö, sem Þorvaldur
bætir viö þessa frásögn í Landfrs. IV., 10, er tilhæfulaust; næstu
sumrin var Jónas heilsugóöur og ótrauSur aí5 feröast, eins og
áfangaskrárnar m. a. sýna, nema hvatS hann haföi meinsemd
á-fæti seinna sumariö.

****) Sjá FerSabók Þ. Th., II., 46.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:53 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/5/0116.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free