Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
_ CVII —
Tveim dögum eftir, að Jónas sendi bessa umsókn um Hólma,
•skrifaði hann fjármálastjórninni og þakkaði fyrir
styrkveiting-una, skýrði frá rannsóknarferðum sinum og sendi því
bráða-birgða-uppástungur um umbætur á starfrækslu
brennisteinsnám-anna fyrir norðan, sbr. IV. b., bls. 60—66, m. aths., og mæltist
jafnframt til að fá styrk til frekari rannsóknarferða (sjá II. b.,
bls. 50—52). •— Bráðabirgða-uppástungurnar eru allmikið mál,
14 bls. í abr.; hefir hann samið þær þessa daga, eftir að hann
lauk ferðum sinum. — Sama dag, 14. Okt., skrifaði hann
Brynj-ólfi Péturssyni (sjá II. b., bls. 49—50), sumt í gamni, sumt í
al-vöru, eins og það bréf bezt hermir. Sunnudaginn 18. Október
var hann aftur staddur suður á Bessastöðum, sennilega hjá
Hallgrimi Scheving, og frétti þá, að skip væri á förum frá
Hafnarfirði til Hafnar. Skrifaði hann þá Finni Magnússyni og
Steenstrup, sjá II. b., bls. 53—56, um ferðir sinar o. fl., og
mæltist til hjálpar af Finni til að útvega sér styrk.
Rúmum þrem vikum síðar heyrum við aftur frá honum; þá
skrifaði hann Páli Melsted sýslumanni, 10. Nóv., sjá II. b., bls.
57—59. Hann segir þá m. a.: „Ég er nú sem stendur í
óða-önn-um að gangast fyrir þvi, að veðurbækur verði framvegis
haldn-ar um allt land". Enn fremur skrifar hann: „I gær kom ég
of-an af Akranesi". Er ókunnugt um þá ferð nú, að öðru leyti en
því, sem stendur í þessu bréfi og í ’bréfi til
fjármálastjórnar-innar 6. Marz 1841 (II. b., bls. 67); segir hann þar, að ferðin
hafi verið jarðfræðisleg rannsóknarför og lætur vel yfir
ár-angrinum af henni. Helzta efni bréfsins til Páls Melsteds er
timaritsútgáfan, sem drepið var á áður. Þvi miður varð ekki
neitt úr henni og skiptir þvi litlu að fara hér að sinni nánar út
í það mál, en vísa má í Bréf T. Sæm., bls. 283—85, enda mun
verða drepið á þetta síðar. Að öðru leyti ber bréfið til Páls
vott um vaxandi áhuga Jónasar á stjórnmálefnum Islands,
einkum alþingismálinu. — Hann gerir ráð fyrir að fara inn í
Við-ey um jólin og gera samning við Ólaf Stephensen um útgáfu
tímaritsins; er óvist, hvort orðið hefir af þeirri ferð.
Svo hefst nýtt ár, 1841, eitt hið merkasta ár í ævi Jónasar,
bæði sem náttúrufræðings og skálds, og einnig að enn öðru
leyti.
Þegar í byrjun ársins tekur hann upp þá reglu að skrifa í
eins konar náttúrufræðislega dagbók ýmislegt, sem hann verður
var við af því tæi, spyr eða verður á einhvern hátt vísari, rann-
hann Jónas, eftir skáldinu. Hann varð prófastur á
Kolfreyju-sta«.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>