- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / V. Smágreinar Dýrafræðislegs efnis, Ævisa A o. fl. /
CXVI

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— CXVIII —

88); kvaðst ekki myndi hafa lagt upp að ferðast austur um
með minna en 500 dali, og sama skrifaði hann
fjármálastjórn-inni að ferðinni lokinni, er hann skrifaði henni um athuganir
sinar og fyrirætlanir næsta haust (s. st., bls. 119).

Sumarið 1839, þegar Jónas var að ferðast nyrðra, hafði
hann áhuga á fornleifum og rannsókn gamalla rúnasteina, eins
og dagbók hans og bréfin til Finns Magnússonar bera vott um.
Finni þótti vænt um þetta og ýtti undir Jónas í bessu efni, en
bæði voru þessar athuganir Jónasi geðfelldar i sjálfu sér, og svo
vildi hann eflaust gera það fyrir Finn, að afla slikra upplýsinga.
Sumarið 1840, þegar hann var að ferðast með Steenstrup, leyfðu
kringumstæðurnar honum ekki að sinna slíkum athugunum
neitt að ráði, en dálitið fékkst hann bó þá við að skrifa upp
áletranir á legsteinum, rúnasteinum o. fl., sbr. III. b., bls. 105—
6, 108—9 og 116. En nú stóð betur á, hann var ekki öðrum
háð-ur, og heilsan var orðin betri. Nú lagði hann allmikla stund á
þessar fornleifa-athuganir og sendi Finni skýrslur um þær, sbr.
III. b., bls. 161—94. I formála fyrir beim segir hann, að
Finn-ur hafi getið þess í bréfi til sín síðast-liðið vor, að
fornfræða-félagið vildi gjarnan, að hann athugaði að nýju rúnasteina í
Borgarfirði og léti félaginu i té skýrslu um
fornfræða-athug-anir sinar. I bréfi Finns frá 24. Mai er ekkert um þetta, en hann
getur þar um, að hann hafi sent Jónasi linu 3. s. m.; hefir
Finnur þá sennilega farið þessa máls á leit í þvi bréfi. — Hann
athugaði fyrst hinar fornu tóftir i Þingnesi i Elliðavatni, þar
sem álitið var, að Kjalarnessþing myndi hafa verið háð í
forn-öld. Varð hann sannfærður um það með sjálfum sér, að þessi
skoðun væri rétt, fór síðan aftur upp-eftir sunnudagskvöldið 20.
Júni og rannsakaði tóftirnar næsta dag með grefti, einkum ívær
þeirra, hina stærstu, sem hann áleit hafa verið búð Þorsteins
Ingólfssonar eða Þorkels mána, og aðra hringmyndaða, sem hann
áleit hafa verið dómhring. Því miður var sifelld rigning allan
siðari hluta dagsins og Jónas ekki friskur. Sjá að öðru leyti
skýrslur hans um rannsóknina, III. b., bls. 137—42 og 161—65
m. aths. — Síðan hefir hann sennilega verið 2 daga um kyrt
heima, en á Jónsmessunni fór hann, og með honum Gunnar
Hall-grímsson skólapiltur, fylgdarmaður hans þetta sumar, á stað
aftur; athugaði Jónas þá Kópavogsþingstað og Hofstaði, þar
sem verið hefir hof hinna fornu, heiðnu Reykvikinga. Daginn
eftir var hann um kyrt á Brekku hjá Páli vini sínum Melsted.
Var hann nú ný-farinn að búa þar með frænku sinni, systur
Gisla ísleifssonar, ástvinar Jónasar i skóla. Næsta dag :cór
Jón-as svo inn í Hafnarfjörð og suður á Hvaleyrarhöfða og skoðaði

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:53 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/5/0128.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free