Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— CXVIII —
hans ekki kunn nógu mörgum enn, Bjarni aðeins við annan
mann sin megin, en ferföld tala andstæðinga hins vegar, — sem
þó hefðu allir verið á sama máli og beir ivimenningarnir, hefði
konungur verið búinn að låta það nógu greinilega i ljós, að
hann ætlaðist til þess, að alþingi yrði endurreist á Þingvelli og
ekki annars staðar. — Bjarni var nú einnig senn frá sjálfur;
vís-urnar hans, er hann gekk á nefndarfundinn 5. Júlí, munu vera
hinar siðustu, er hann orti (sbr. aths. við þær í I. b.).
Sunnudagskvöldið 11. Júlí komst Jónas af stað frá
Reykjavik. Kl. 2 um nóttina komst hann upp að Miðdal og næsta dag
hélt hann áfram að Þingvöllum og gerði sér um leið grein fyrir
afstöðu bergtegundanna á þessum slóðum og í grenndinni, sjá
dagbók hans frá ferðinni, III. b., bls. 146—47, og svo áfram til
bls. 160, 29. Júlí. Næsta dag var hann um kyrt á Þingvöllum, -—
í sólskini og góðu veðri. Var nú gaman fyrir hann að koma
þang-að og skoða einu sinni enn hinn forna þingstað, sem nú var svo
mikil og heit deila um, deila, sem hann tók sjálfur þátt í af lífi
og sál. Honum hefir ekki verið vel rótt, er Bjarni sagði honum
af fundinum hinn 5. Hann hefir auðsjáanlega orðið svo æstur,
að hann finnur ástæðu til að biðja Bjarna „fyrirgefningar á
bráðlyndinu", þegar hann er kominn í kyrð og ró á Þingvelli
(II. b., bls. 76). Hann fór nú samt ekki þangað til að skoða
sjálfan þingstaðinn þar, heldur til þess að gera jarðfræðislegar
athuganir í nágrenninu. En hann gat þó ekki gleymt
þingstaðar-deilunni; honum komu aftur í hug allar hauskúpurnar með
þorskkvörnunum, sagan, sem hann skrifaði séra Tómasi frá
Þingvelli fyrir 4 árum, og hann stakk inn í bréfið til Bjarna
hinni nöpru háðsögu um mannfjöldann, sem hauskúpurnar með
þorskkvörnunum voru á og sem var tjóðraður á hinum forna
þingstað með asnakjálkum. Arla næsta morgun lagði hann á stað
frá Þingvöllum í bliðskaparveðri og hugðist nú að rannsaka
Skjaldbreið, eins og hann hafði lengi langað til. Hann fór sem
leið lá upp á Hofmannaflöt og síðan austur Eyfirðingaveg, alla
leið austur fyrir Hrafnagjá. Þá langaði hann til að skoða
Sand-gíg, vita hvort hann væri verulegur, litill aukagigur, eins og
hann var til að sjá. Hleypti hann nú á Baldri sinum á undan, —
og Kara elti, — en Gunnar og annar fylgdarmaður, kunnugur,
sem Jónas hafði fengið með sér þennan daginn, áttu að halda
áfram með lestina. En þegar Jónas var búinn að yfirheyra
Sand-gig, og komast að raun um, að hann var ekki annað en
mein-laus móbergshraukur, fór hann að skyggnast eftir lestinni, en
hún var þá horfin. Hann sá, að þeir Gunnar myndu hafa farið
út af veginum og fór nú að leita að þeim og kalla, en allt kom
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>