- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / V. Smágreinar Dýrafræðislegs efnis, Ævisa A o. fl. /
CXIX

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— CXIX —

fyrir ekki, þeir Gunnar og lestin sáust hvergi — til allrar
hamingju, því að nú var Jónas og Hulda, hin „sólfagra mey",
ein og i næði, og skálddisin laðaði fram i huga hans ljóðið fagra
um Skjaldbreið og myndun Þingvallar. Sjálfur segir Jónas frá
þessu ferðalagi sinu í dagbók sinni, og vitanlega betur en hér
eru tök á, sbr. III. b., bls. 147—52, en kvæðið hans kunna allir.
Hann hafði skrifað Bjarna amtmanni, að hann fyndi á sér, að
hann gæti skrifað „eitthvað nógu gott", ef hann mætti vera á
Þingvelli svo sem 3 eða 4 daga. — Hann var undirbúinn.
Tæki-færið kom, þegar hann fékk að vera einn í næði. — Hann
at-hugaði jafnframt Skjaldbreið og hraunin þaðan, og næsta
morg-un dró hann upp mynd af fjallinu (III. b., við bls. 152), þar sem
hann var þá staddur og hafði fundið fylgdarmenn sina, í
Neðri-Brunnum. Síðan fór hann um Kaldadal þennan dag og ofan að
Húsafelli; þar var hann svo 2 næstu daga um kyrt og gjörði
dagbók sína, lýsinguna af ferðinni þangað, Skjaldbreið og
öðr-um fjöllum o. fl., sem hann athugaði, og skrifaði upp áletranir
á nokkrum legsteinum og veiddi silunga. E. fr. safnaði hann og
bjó um sýnishorn af bergtegundum, sem hann sendi til
náttúru-gripasafns háskólans í Höfn (III. b., bls. 152—54).
Sunnudag-inn 18. Júlí fór hann að Gilsbakka og skoðaði í leiðinni
Tung-una litlu og fornleifarnar þar (s. st., bls. 154—56 og 174—76),
og næsta dag var hann um kyrt á Gilsbakka sakir rigningar,
gerði jarðfræðislegar athuganir og ritaði upp gamlar áletranir á
legsteinum. Daginn eftir fór hann yfir að Reykholti og skoðaði
rúnasteina og Snorralaug, næsta dag upp að Siðumúla og
Norð-tungu, og athugaði gamla legsteina þar, en næsta dag, 22. Júlí,
fór hann upp i Norðurárdal og allt fram i Grákollugil og
athug-aði surtarbrand þar næsta morgun, en fór síðan aftur ofan að
Hvammi og var þar um kyrt vegna óveðurs daginn eftir, enda
var hann ekki vel friskur; bjó nú um náttúrugripi, er hann hafði
safnað og skrifaði upp áletranir á rúnasteinum, og e. fr.
skrif-aði hann Steenstrup langt og merkilegt bréf um ferðir sinar og
náttúrufræðislegar rannsóknir (II. b., bls. 77—79). Næsta dag
sunnudaginn 25. Júlí, var enn óveður, en Jónas fór þó ofan að
Hreðavatni; athugaði Hvassafell og Grábrók. Daginn eftir var
hann um kyrt á Hreðavatni sökum sifelldrar rigningar, en
næsta dag stytti upp, og gåt Jónas þá athugað á ný
surtarbrands-lagið þar i grenndinni og safnað sýnishornum með
viðarstein-gjörvingum, athugað landslagið og jarðmyndunina m. fl.
Daginn eftir fór hann lausriðandi ofan-að Munaðarnesi og Stafholti
til að athuga surtarbrand, en lestin hélt beint áfram vestur að
Grisartungu, og þaðan fór Jónas svo næsta dag yfir Vestri-

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:53 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/5/0131.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free