Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— CXXXIII —
einnig fram, og varð nú enn beiskari í garð mótstöðumannanna,
og um leið gægðist fram eins konar klaksár fögnuður:
Hlægir mig eitt, það, að áttu
því uglur ei fagna,
ellisár örninn að sæti
og á skyldi horfa
hrafnaþing kolsvart i holti
fyrir haukþing á bergi.
Tómas hafði líka komizt hjá þeirri hugraun. — Svo myndi, ef
til vildi, fara fyrir honum sjálfum einnig.
Hann hélt leiðar sinnar næsta dag frá Reykjum og fór að
Vatnsskarði um kvöldið, sennilega um Svinavatn og
Bólstaðar-hlíð, yfir Blöndu á Hamarsvaði, en daginn eftir, síðasta dag
Agúst-mánaðar, fór hann út að Reynistað, þvi að hann langaði
til að fara norður í Fljót og þaðan á Siglufjörð. Honum hafði
ekki heppnazt 1837 né 1839, sökum illviðra, að rannsaka fjöllin
á milli Skagafjarðar og Eyjafjarðar hið ytra. En í þetta sinn
fór enn sem fyr. Sumri var í raun og veru brugðið; það fór að
snjóa í fjöll og rannsóknum á þeim varð ekki vel komið við.
Jónas varð að hætta við ferðina til Siglufjarðar og sneri við að
Glaumbæ 1. September. Daginn eftir fór hann að Kotum í
Norðurárdal og næsta dag heim að Steinsstöðum. Hann gat þá
verið við jarðarför Bjarna amtmanns; hann var grafinn heima
á Möðruvöllum næsta dag. Hann náttaði sig í Dunhaga, hjá
séra Jóni lærða Jónssyni, er talaði yfir Bjarna og mun hafa
boðið Jónasi heim með sér frá jarðarförinni, en fór síðan aftur
heim að Steinsstöðum og var þar um kyrt til að hvíla sig og
hestana eftir langferðalagið norður, áður en hann legði upp í
suðurferðina. Skrifaði hann nú Finni daginn eftir að hann
kom heim frá jarðarförinni og sendi honum framhald af
forn-fræðaskýrslu sinni (II. b., bls. 98—99). — „Ég hafði lofað
amt-manni Bjarna að finna hann, ef ég kæmist svo langt; enda náði
ég rétt i að sjá hann fara ofan i gröfina", segir hann m. a. i
bréfinu.
Á Steinsstöðum var allt likt og áður, fyrir tveim árum, er
hann hafði verið þar siðast.
Hann langaði enn til að reyna að komast til Siglufjarðar,
en „einhver hefndarnorn situr fyrir mér", skrifaði hann til
Finns, „svo ég held ég ætli aldrei að komast í Siglufjörðinn;
ég er nú að vaka yfir því, en snjórinn hamlar mér". Hann lagði
loks af stað laugardaginn 11. Sept. og mun hafa lagt seint upp,
því að hann fór að eins út að Krossastöðum á Þelamörk um
kvöldið, en næsta dag fór hann að Upsum í Svarfaðardal, til
séra Baldvins, föðurbróður síns. Mun hann hafa ætlað að reyna,
hvort tiltækilegt væri að fara Reykjaheiði næsta dag yfir i
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>