- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / V. Smágreinar Dýrafræðislegs efnis, Ævisa A o. fl. /
CXXII

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— CXXXII —

lausríðandi þaðan fram og aftur. Daginn eftir var hann um
lcyrt á Borðeyri, og athugaði þar m. a. hinar fornu búðatóftir
(III. b., bls. 194), en fór næsta dag að Staðarbakka í Miðfirði
og þaðan daginn eftir að Víðidalstungu. Siðan fór hann
norð-ur að Steinnesi næsta dag, og að Hnausum, sem eru skammt
frá, daginn eftir, 28. Ágúst. Þann dag kveðst hann hafa inætt
á Reykjabraut sendimanni að norðan, er flutti honum fregnina
um lát Bjarna amtmanns (sjá bréf til J. St., II. b., bls. 116), en
eftir áfangaskránni fór hann að Reykjum, um Reykjabraut,
sunnudaginn 29. Ág. Kann hann þó að hafa farið upp á
Reykjabraut og að Hnausum aftur daginn áður. En hvað sem um það
er, þá hafði nú orðið sá atburður í fráfalli Bjarna amtmanns,
sem hafði hin sterkustu áhrif á Jónas. Fráfall Bjarna hafði
orðið með sviplegum hætti nóttina milli 25. og 26. Ág. Fyrir
7 vikum höfðu þeir skilið í Reykjavik og Bjarni klappað á
öxl-ina á honum og sagt: „Þegar ég dey, þá verður þú eina
þjóð-skáldið okkar, Jónas minn".*) Jónas mun ekki hafa búizt við, að
hann lifði Bjarna, heldur hafði hann fengið Bjarna til að heita
sér því, að hann skyldi mæla eftir sig, en

„Guð hefir skipt hetju sina heimt

og til góðra funda úr harki veraldar"

varð honum nú að orði. Og nú snerist öll athyglin frá
umhverf-inu og náttúrunni. Allt varð skyndilega sem dautt og kalt.

Skjótt hefir sól brugðið sumri,

skjótt hefir guð brugðið gleði,

nú reikar harmur í húsum
og hryggð á þjóðbrautum.

Enn kom köllun innan-frá til að yrkja erfikvæði, hið þriðja
þetta sumar. Það kom í huga hans á hestsbakinu eins og önnur
kvæði fyr á þessu ferðalagi (sbr. I. b., bls. 97—98, m. aths.).
Yndislega ljóðrænt að upphafi, dapurleg lýsing á náttúrunni,
þegar hugurinn var að hverfa frá skoðun hennar og beindist
inn á við til athugunar hins sorglega umhugsunarefnis; en
endurminningin um umræðurnar á síðasta samfundinum brauzt

*) Sbr. LjóSm., 2. útg., bls. XXXI. — Bjarni á þá einnig’ að
hafa bo’öiö Jónasi aö vera næsta vetur nyrSra hjá sér, og Jónas á
a’ð haía þegiö þaS bo?5, en ekkert bendir til þess, aö svo hafi veriS.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:53 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/5/0134.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free