Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— CXXVI—
þess, sem ferðakostnaðurinn hafði farið fram úr styrknunu
Daginn eftir skrifaði hann einnig Finni og gåt enn um jpetta við
hann, og bað hann jafnframt um að róa að þvi öllum árum, að
hann gæti ferðazt um Austurland næsta sumar, fengi til þess
500 dali. — Það er eftirtektarvert, að þegar Jónas ætlaði að
sækja um til f jármálastjórnarinnar styrk til rannsókna og
ferða á íslandi 1838, þá hættir hann við það; þegar hann
ætl-ar heim næsta ár, býður hann fjármálastjórninni bjónustu sína,
ef hún skyldi vilja låta fara fram náttúrufræðislegar rannsóknir
á íslandi, en hann sækir ekki um styrk handa sjer til bess að
framkvæma þess konar rannsóknir; og þegar fjármálastjórnin
rausnast við að veita honum eina 100 dali, þá sækir hann ekki
um meira sem styrk, heldur sem lán. Ekki sækir hann heldur
um styrk 1840, heldur hafði Pinnur gert það fyrir ársbyrjun,
og sömuleiðis hafði Steenstrup gert það (eftir ’beiðni), er Jónas
fékk 300 dali 1841.*) Nú sækir Jónas að visu um þóknun vegna
þess, hve ferðin hafði orðið kostnaðarsöm, en ekki sækir hann
um styrk til rannsókna næsta ár, og ekki felur hann það heldur
neinum. Það er svo að sjá, sem hann hafi kunnað betur við að
beiðast ekki styrkveitinga sjálfur handa sér, heldur að aðrir
kæmu því til leiðar, að honum yrði veittur hann, ef þess yrði
kostur. Honum hefir eðlilega fundizt fara betur á því, að aðrir
en hann sjálfur mæltu fram með honum og töluðu hans máli;
enda mun stjórninni hafa þótt fara vel á þvi, ekki sizt bar sem
Jónas var heima á Islandi.
Jónas hafði verið til húsa hjá Einari Hákonarsyni
hatta-makara undanfarin 2 ár. Einar var frændi Gísla Isleifssonar,.
vinar Jónasar, sonur Hákonar Oddssonar og Kristínar, systur
isleifs yfirdómara; munu þeir Jónas og Einar hafa verið
kunn-ingjar frá þvi að Jónas var i skóla og síðan í Reykjavik. Einar
átti hús við Aðalstræti, „Hákonsenshús", þar sem nú er nr. 3,
er tengdasonur hans, Valgarður Breiðfjörð, byggði ofan á
gamla. húsið og upp úr bví.**) Stofan, sem Jónas var í, var í
norðurenda hússins, niðri, og er þar nú sölubúð.***) En Ivar
Hansen klæðskeri, sem Jónas kveðst vera hjá, er hann skrifar
Steenstrup 5. Nóv. þetta haust, bjó í „Steinsenshúsi", sem þá
var svo kallað; það var sunnar i Aðalstræti, næsta hús sunnan-
*) Sbr. þó ummæli Jónasar í bréfi hans til
fjármálastjórnar-innar 6. Marz 1841, II. b., bls. 68.
**) Sbr. Rvík 14 vetra, bls. 70 og 93, og Sögu Rvíkur, I., 173.
***) Benedikt Gröndal segir í Dægradvöl, bls. 53, frá þvl, aS
hann hafi einu sinni komiö til Jónasar af forvitni, þegar hann átti
heima í þessu húsi; lýsir Gröndal dálítit5 þessari heimsókn sinni.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>