Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— CXXXVII —
sent til safnanna, og er umsögnin öll meðmæli með Jónasi; þeir
segja m. a.:–-„indskrænke vi os til at godtgøre, at Hall-
grimsson ved de Naturalier, han har sendt til de af os bestyrede
Museer, har vist, at han er det ham betroede Hverv voksen"..
Leið nú ekki á löngu þangað til stjórnin ákvað að mæla með
þvi, að Jónas fengi hina umbeðnu styrki; það gerðist 19. Apríl,
og þegar næsta dag, síðasta vetrardag, úrskurðaði konungur
á sömu leið,*) en 10 dögum síðar, 30. s. m., voru tilkynningar
um styrkveitinguna sendar öllum, er hlut áttu að máli,
landfó-geta, Jónasi, Steenstrup, Finni og báðum prófessorunum.
Finnur lét greiða sér 150 dali vegna Jónasar, en greiddi 100 aftur
6. n. m. og bað senda þá heim til hans.
Daginn eftir að fjármálaráðuneytið hafði ákveðið að mæla
með styrkveitingunum til Jónasar, boðaði Finnur fund í
Hafnar-deild; mun hann hafa vitað, hvað leið. Fundurinn varð ekki
haldinn næstu 2 daga, sumardaginn fyrsta og
kongsbænadag-inn, en hann var þriðja dag í sumri, laugardaginn 23- Apríl.
„Forseti bar upp, hversu haga skyldi um samningu lýsingar á
íslandi, og stakk u->pá, að félagið byði cand. philos. Jónasi
Hall-grimssyni að koma hingað í haust, og með þeim skilmála, að
fé-lagið stæði honum inni fyrir 200 dala styrk í ár, en hann legði
grundvöll til Islands lýsingar; var það samþykkt af
félags-mönnum". — Þess er því næst getið í fundargerðinni, að
fram-lögð hafi verið prestakallalýsing í Hólastipti svo sem gjöf frá
Jónasi til félagsins. — Sama dag, sem Jónas skrifaði Finni
svar-bréf sitt, er áður var getið, 2. Mai, skrifaði Finnur honum sem
forseti Hafnardeildar þessa fundarsamþykkt.**) Fyrst þakkaði
forseti Jónasi fyrir brauðalýsingarnar, þvi næst fyrir starfa
þann, er hann hafði haft fyrir sóknalýsingunum, og óskaði
eftir, að hann safnaði þeim, sem enn vantaði; þá taldi hann
lik-legt, að nú mætti fara að byrja á lýsingu íslands, en hentugra
að semja hana i Höfn, þar sem sóknalýsingarnar nú voru, og
því hefði fundarsamþykktin verið gerð. Síðan bætir hann við:
„En þó vér fullkomlega könnumst við, að þetta boð sé oflítið,
þareð verkið mundi taka alla tíð yðar, þá virðist oss það
lík-legt, að hið konunglega rentukammer muni skjóta til nokkru til
styrktar, svo að laun yðar yrði sæmileg; vér höfum og einnig
von um, að félagið lætur sér ekki í augum vaxa að játa yður
styrk um lengra tíma, ef þess þarf við, en efni þess og aðrar
*) Sbr. Lovsaml. f. Isl., XII., 316—17.
**) BréfiS er í nr. 13 1 abr. 1 hrs. Bmf.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>