- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / V. Smágreinar Dýrafræðislegs efnis, Ævisa A o. fl. /
CXLIII

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— CXXXVIII —

þeim Páli Melsted yngra og Þórði Jónassen; e. fr. sendi hann
Konráði dálítið gamanbréf, „svona til vonar og vara, karl minn".
(Sjá II. b., bls. 136—40, m. aths.). Loks komst skipið af stað
27. Okt., fimmtudaginn í fyrstu viku vetrar. Segir ekki af
ferð-inni fyr en það kom undir Noreg og inn undir Austur-Agðir.
Fengu beir þá svo hvasst andviðri, að hleypa varð inn til
Arin-dals og biða þar byrjar i 6 daga. Fékk Jónas þá tækifæri til að
sjá nokkuð Noreg á þeim slóðum, og mun hann ekki hafa komið
til Noregs fyr né síðar. Sunnudaginn 13. Nóvember sté hann
loks fæti á land i Höfn, eftir 18 daga ferð.

VII.

HAFNARÁRIN SÍÐARI.

Jónas virðist hafa verið ánægður með sumarferð sína og
árangurinn af henni; kemur það fram í yfirliti hans yfir allar
sumarferðirnar heima (III. b., bls. 278), og e. fr. í bréfi eða
stuttri bráðabirgðaskýrslu um þær, er hann sendi
fjármála-stjórninni 4. Des., réttum 3 vikum eftir að hann var kominn
aftur til Hafnar (II. b., bls. 141—42) eftir nær 3% árs fjarveru.
— Hann hafði sent allmikið af náttúrugripum frá Austfjörðum,
bæði Djúpavogi, Eskifirði og Vopnafirði, og mikið hafði hann
ineðferðis. Má nærri geta, að ærið var að starfa, þegar hann
kom til Hafnar, að koma öllu fyrir, og svo sjálfum sér og sínum
eigin farangri, ganga frá ferðadagbókinni o. fl. I bréfinu til
stjórnarinnar 4. Des. lætur hann þess getið, að hann hafi þá
þegar látið skrifa dagbókina upp, til afnota handa Steenstrup
sérstaklega. Eftir þeirri uppskrift hefir hún verið gefin út hér
i III. b. (sbr. aths. við bls. 208 þar, upphaf hennar).

Daginn áður en Jónas skrifaði stjórninni, svo sem nú var
sagt, var haldinn fundur í félagi, sem nokkrir landar í Höfn
höfðu stofnað með sér vorið 1840 Mun bréf Kristjáns konungs
til kansellísins 20. Mai viðv. endurreisn alþingis, ef til vildi á
Þingvelli, hafa verið undirrótin til þessa félagsskapar. Séra
Tómas hafði sagt skilið við þá þrimenningana, útgefendur
Fjöln-is, er þeir höfðu gefið út, ásamt honum, þrjá árganga af Fjölni
og voru að låta prenta hinn fjórða, en þeir höfðu þó gefið út
fyrir hann, svo sem 5. árgang, 3 ritgerðir, sem hann hafði
sam-ið, og 3 kvæði, er hann vildi taka með í ritið. Voru þessir ár-

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:53 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/5/0155.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free