Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— CXLVII —
og Gísli Thorarensen kosnir i hana fyrir Grim og Brynjolf. Varð
nú ekki meira af fundahöldum þetta árið. Má nærri geta, hve
Jónasi hefir fallið þetta þjark og þóf illa, þó að hann gæti ekki
þegar girt fyrir það, svo sem hið snubbótta lagafrumvarp var
úr garði gjört.
Daginn eftir þennan síðasta fund í Fjölnisfélaginu boðaði
Finnur Magnússon forseti Bókmenntafélagsins fund; hann skyldi
— og var — haldinn daginn fyrir Þorláksmessu. Lagði forseti
nú fram sem gjafir til félagsins frá Jónasi stjörnufræði hans
og brauðalýsing Skálholtsstiftis.*) Þá voru þeir prófessorarnir
Reinhardt og Forchhammer kjörnir heiðursfélagar, sennilega
eftir ósk Jónasar eða forseta og hans. Samþykkt var, að
félag-ið borgaði ferðakostnað Jónasar til Hafnar frá Eskifirði, 25
dali. Forseti skýrði frá, hvað liði undirbúningi
Islands-lýsingar-innar, og kvað Jónas hafa tekið að sér 1. partinn, en Konráð,
Brynjolf og Jón Sigurðsson ýmislegt annað af verkinu. Þá
var lesið bréf frá deildinni heima, að hún féllist á tilboðið til
Jónasar, að koma til Hafnar og rita Islands-lýsinguna, og e. fr.
voru lagðar fram uppskriftir af veðurbókum, sem
Reykjavikur-deildin hafði fengið.**) Loks bar forseti upp þá tillögu, „að
kosin yrði nefnd til að safna og raða niður lagagreinum
félagsins, sem væri á víð og dreif, og stinga upp á breytingum, ef
þurfa þætti; var það samþykkt með atkvæðafjölda; voru kosnir
í nefnd þá 3 menn: Herra Jónas Hallgrimsson með 13 atkvæðum,
skrifari deildarinnar (þ. e. Jón Sigurðsson) með 11 og herra
Brynjólfur Pétursson með 10 atkvæðum". Fundurinn var
þann-ig að mestu leyti viðkomandi Jónasi, og er hans því getið hér,
en það sem gerðist fyrstu vikurnar eftir að Jónas kom til
Hafnar í báðum þessum félögum og nú hefir verið sagt frá, ber vott
um nokkur viðfangsefni hans þá og jafnframt það álit, sem
landar i Höfn höfðu á honum.
Með byrjun þorra hófust aftur fundahöld í Fjölnisfélagi;
1. fundur 1843 var haldinn 21. Janúar. Jónas las nú upp hið
nýja lagafrumvarp, sem var i 20 greinum. Var það rætt og
sam-þykkt á þessum fundi að mestu leyti, síðustu greinarnar á næsta
fundi, sem var viku siðar. Þá var einnig ákveðið, að låta ársrit
það heita Fjölni, sem út skyldi gefið samkvæmt 4. gr. laganna,
en frestað var, að taka ákvörðun um nafn félagsins, og þótti þó
raunar eðlilegast að kalla það Fjölnisfélag, eins og það var
venjulega nefnt. Siðan voru fundahöld nokkurn veginn reglu-
*) Sbr. Skýrslur og reikninga 1843, bls. VIII.
**) Sbr. Skýrslur og reikninga, bls. V—VI.
10*
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>