- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / V. Smágreinar Dýrafræðislegs efnis, Ævisa A o. fl. /
CLV

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

_ CLV —

hafa skrifað Jónasi um upphaf þessara fundahalda og ýms
merkileg mál önnur, og má sjá af bréfi Jónasar til hans 9. Nov.
(II. b., bls. 157—59), að nú hefir hann brunnið af áhuga og
löngun til að vera með í þessum fundahöldum og
bollalegging-um. En hann var nú önnum kafinn við sin störf úti í Sórey, og
milliferðir seinlegar, kostnaðarsamar og erfiðar. Hann biður
Jón útvega sér að láni 3 bækur og suðausturfjórðunginn af
ís-landsuppdrættinum, sem þá var langt kominn.

Steenstrup fór fram á það við fjármálastjórnina,*) að
þeir Jónas og hann fengju lánuð út til Sóreyjar til afnota við
samning náttúrufræðislegrar lýsingar á Islandi ýms skjöl, er
snertu brennisteinsnámana þar. Stjórnin skrifaði Steenstrup 7.
Okt. og sendi honum 7 skjöl, sem varðveitt voru i islenzku
stjórnarskrifstofunni, nefnilega skýrslu um tekjur og gjöld
brennisteinsverksins á Húsavík 1799—1805 (eftir Stefán amtm.
Thorarensen), bréf, sem Steenstrup hafði sent stjórninni 15.
Des. 1840, ritgerðir Jónasar um bætta meðferð námanna og
áætlun um þann arð, sem þeir gætu gefið, og enn fremur
at-hugasemdir þeirra Steenstrups og Schythe við bær. Var þetta
þannig að mestu endursending á því, sem þeir höfðu áður sent
og hér hefir verið getið áður. En þetta bendir á, að um þessar
mundir, í þessum og næsta mánuði, muni Jónas hafa samið
rit-gjörð sina um brennisteininn, sjá IV. b., bls. 8—66, m. aths.
Steenstrup hafði skoðað brennisteinsnámana syðra og gat
unn-ið að lýsingu Jónasar á þeim, og Jónas hefir fengið hann til að
skrifa kaflann um myndun brennisteinsins í námunum,
sam-kvæmt kenningu Forchhammers og eigin athugunum. Schythe
kom ekki nálægt þessu og samdi Jónas ritgerð sina mestmegnis
eftir eigin athugunum. Kallaði Steenstrup hann nú í gamni
„Svovlmesteren". I bréfi sínu til Brynjólfs, 22. Nóv., segir
Jón-as, að þeir Steenstrup séu búnir með allt það um
brennisteininn, sem þeir hafi ætlað að rita. Skömmu fyrir áramótin, 28.
Des., sendi Steenstrup skjölin aftur og kvaðst vona, að málinu
væri senn komið svo langt, að þeir gætu lagt fram tillögur um
hagkvæmari notkun brennisteinsnámanna; stæði nú á bví, að
fá nánar að vita um kostnað við ýmis konar útbúnað við
brenni-steinsverk annars staðar. Það virðist hafa staðið helzti lengi á
þeim upplýsingum, þvi að ritgjörð Jónasar var aldrei send
stjórninni. Sofnaði brennisteinsmálið nú brátt og lagðist allt
brennisteinsnám niður hér á landi; missti Island af þessari

*) Eða Chr. Lunds konferenzráS, sbr. bréf frá Brynjólfi til
Jónasar, dags. 17. Á<. (í 13 í abr. I hrs. Bmf.).

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:53 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/5/0167.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free