- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / V. Smágreinar Dýrafræðislegs efnis, Ævisa A o. fl. /
CLVIII

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— CLXVIII —

(bindindisfélagið). Á 10. Fjölnisfundi, 23. Marz, var e. fr.
ákveð-ið að fela séra Pétri og öðrum félagsmanni að semja skýrslu um
athafnir þessa nýja félags; var hún lesin upp á næsta fundi, 30.
s. m., og á 12. fundi ráku þeir Brynjólfur og Konráð
endahnút-inn á. Varð þetta allt allmikið mál, og var prentað í næsta
Fjölni.*) — En það þurfti nú að hugsa Fjölni fyrir fleira en
þessum ritgjörðum um prestatekjurnar og bindindisfélög.

Jónas virðist ekki hafa fengizt mikið við ljóðagerð síðan
Fjölnir kom út vorið 1843, ef til vill einungis þau 4 erindi (3
kvæði), sem eru á bls. 128—30 í I. b. Á 2. Fjölnis-fundi 1844,
20. Jan., las Brynjólfur upp kvæði, er Jónas hafði sent honum;
það var „Dalvísa", sem minnzt var á hér að framan (bls. XV).
Kvæðið var nýort, sbr. aths. við bað. Jónas mun hafa skrifað
honum eða þeim Konráði bréf um leið og hann sendi beim
vís-una, en það bréf mun glatað. Það mun hafa verið svar við
bréfi frá Brynjólfi, dags. 13. Jan.**) Brynjólfur skrifaði honum
aftur 12. n. m. og bað hann blessaðan um að senda þeim meira.
Hann segir honum frá erindi sínu nokkrum dögum áður á alm.
fundinum, um hófsemina, og bætir við: „Blessaður vertu rcyrir
það, Jónas minn, að þú ert hættur að drekka brennivín". I
bréf-inu, sem hann hafði skrifað 13. Jan., hafði hann einnig sagt:
„Þú gazt ekki glatt mig meir með nokkrum hlut en að segja
mér, að þú hefðir ekki smakkað brennivín síðan við sáumst
seinast, nema þú hefðir þá sagt mér, að þú ætlaðir aldrei að
smakka það meir, eins og ég". Það var þannig Jónas, sem hafði
gerzt bindindismaður á undan þeim
hófsemdarfélagsstofnönd-unum í Höfn. Kemur þetta heim við það, sem Steenstrup
skrif-aði vinum Jónasar um hann um þetta leyti: „Til Hallgrimssons
Ros maa jeg sige, at han har været i mod Forventning særdeles
føjelig og flink og afsagt her enhver Nydelse af en vis Art".
Er svo að sjá, sem Steenstrup hafi búizt við, að Jónas væri
orð-inn all-erfiður viðureignar, og virðist hann hafa verið búinn að
fá einhverjar óskemmtilegar hugmyndir um hann, sennilega af
bréfi, einu eða fleirum frá vini þeirra beggja, Þórði
Jónas-sen.***) Af hinum bágu fjárhagsástæðum Jónasar siðasta
vetur-inn hans í Reykjavik virðist Þórður, eins og Páll yngri
Mel-sted,****) hafa álitið, að Jónas væri alveg að verða að engu, —
á sama tíma sem hann yrkir ódauðleg ljóð og starfar að þeim

*) Sbr. Fundabókina, Fjölni, VII., 32—70, < g Tím. Bmf. XII., 57.

**) Er nü t nr. 13 í abr. f hrs. Bmf.

***) Mindeskrift for Jap. Steenstrup, I., 53.

****) Bréf til .1. S., 30.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:53 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/5/0170.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free