Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— CLXVII —
voru með honum i nefndinni og hafa ef til vill haft einhver
áhrif á hann, en ekki mun það þó síður hafa valdið nokkru um,
sem séra Tómas hafði reynt að leiða honum fyrir sjónir i
bréf-um sinum, og að helztu menn, sem nokkuð létu nú prenta, svo
sem Félagsritsmenn og aðrir, tóku ekki í mál að fylgja þeirri
stafsetningu, sem Konráð hafði verið að reyna að koma á. Gerði
Konráð nokkra grein fyrir afturhvarfi sinu í næsta árgangi
Fjölnis, eins og nú var getið, bls. 1—3.*) — A báðum síðari
Fjölnisfundunum, 16. og 30. Des., voru hafðar umræður um ýms
óskild mál. M. a. kom séra Pétur þegar á fyrri fundinum fram
með hina lofuðu ritgjörð, eða sagði frá efni hennar; var hún
um prestaköllin á Islandi. A hinum siðari talaði Konráð um, að
nota helzt eingöngu latneskt letur, en ekki gotneskt, á öllu, sem
skrifað væri eða prentað á islenzku, sbr. grein hans í Fjölni,
VIII., 28—33. Var það nú orðið auðsótt mál. A þeim fundi stakk
Gísli Thorarensen einnig upp á því, að gjörð væri gangskör að
því, að koma upp „grafmarki yfir séra Tómas sáluga, er áður
hafði verið um talað. Tóku allir því vel, og var þegar nefnd
val-in, er gangast skyldi fyrir þessu máli meðal annara íslendinga í
Kaupmannahöfn".
Séra Pétur hafði gert svo ráð fyrir á almennum
íslendinga-fundi 6. Des., að hann myndi tala um prestlaunamálið á næsta
slíkum fundi. Kom það heim við fyrirheit hans í Fjölnisfélagi
18. Nóv., og mun hann af þessu hafa flutt þessa ræðu um
prestaköllin á Fjölnisfundinum 16. Des. Rétt eftir áramótin, 3. Jan.
1844, hélt hann svo fyrirlestur sinn á alm. islendingafundi,
samdi siðan upp úr honum ritgjörð, er hann las upp á 4.
Fjölnis-fundi mánuði síðar og að nokkru leyti 10. s. m., og var hún siðan
bii’t í næsta Fjölni, bls. 3—26, næst á eftir athugasemdum
Kon-ráðs um stafsetninguna. Allmiklar umræður fóru fram um þetta
mál á alm. fundinum 3. Jan., og var haldið áfram á næsta fundi,
7. Febrúar.**)
Á Fjölnisfundinum 16. Des. hélt einn fundarmanna ræðu um
ofdrykkju, og á 1. og 6. Fjölnisfundi eftir áramótin, 13. Jan. og
17. Febr., las sami maður upp ritgjörð eftir sig um
hófsemisfé-lög o. fl. því máli viðvikjandi. Á 3. Fjölnisfundi, 3. Febr., lagði
Br. P. fram töflu yfir áfengisinnflutning 1841, og á alm. fundi
7. Febr. flutti hann erindi um hófsemi fyrir hófsemisfélagið
*) Ritgeröarkorn, er hann las upp á 7. Fjölnisfundi n. á., 24.
Febr. Sbr. e. fr. yfirlit B. M. Ólsens yfir þennan lokaþátt
stafsetn-ing-armáls Fjölnismanna í Tím. Bmf., XII., 57—61.
**) Sbr. fundabókina, Andv. XLV., 14—18 og 20—24.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>