Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— CLXVI —
fundur, hvi að forstöðunefnd fundahaldanna afsalaði sér nú
tigninni og skrifarar fundabókinni. Jón Sigurðsson stakk upp á
Jónasi til forseta, og var hann kjörinn. Var nú rætt um, hvort
halda skyldi áfram almennum fundum; stakk Jón upp á, að svo
yrði gjört og mælti enginn á móti. Var þá rætt um fundahöldin
framvegis og kjörin ný forstöðunefnd: Jón, Brynjólfur,
Þor-leifur Repp, Oddgeir Stephensen og Jónas. í næsta mánuði voru
siðan haldnir 2 fundir; hinn fyrri var 14. Nóv., og var Jónas
aftur kjörinn forseti. Var þá fyrst kosið i tvær nefndir, i stað
manna, er voru farnir úr þeim; var Jónas kosinn i aðra, nefnd í
landstjórnarmálinu, í stað drs. Péturs Péturssonar. Siðan urðu
miklar umræður um bænarskrá i verzlunarmálinu; hafði því
máli ekki verið lokið um vorið. Vildi forseti nú útkljá það mál,
en ósamkomulag varð um, hvort íslendingar í Höfn skyldu låta
bænarskrána koma fram frá sér einum og undir sinu nafni eða
að eins semja hana og låta bera hana upp heima. Þeir Jónas og
Jón Sigurðsson, Jón Thoroddsen og Grímur Thomsen o. fl., vildu
hið fyrra, en Brynjólfur, dr. Jón Hjaltalin, Magnús Eiríksson
o. fl. hið síðara. Var nú eftir uppástungu forseta kjörin 5 manna
nefnd (þ. á. m. Brynjólfur, Jónas og Jón Sigurðsson), til að
athuga, hvað gera skyldi. A seinni fundinum eða aukafundinum,
28. Nóvember, var Jónas enn valinn forseti. Þá hóf Halldór Kr.
Friðriksson umræður um skólamálið, sem hafði orðið að fresta
á fyrri fundinum, og stakk hann upp á a3 setja nefnd i það.
Fylgdi forseti máli Halldórs og siðan fleiri. Var samþykkt, að
kjósa 5 manna nefnd, og þeir Jón Sigurðsson og Brynjólfur,
Jón-as og Sigurður Melsted kosnir, ásamt Hallclóri, í nefndina.
Forseti bað síðan nefndina í verzlunarmálinu lesa upp álit
sitt. Hún hafði ekki orðið á eitt sátt fremur en fundurinn, en
Brynjólfur var einn í minni hluta;*) Jón Sigurðsson bað um, að
fundarbókin frá þvi um vorið yrði lesin upp. Lét forseti greiða
atkvæði um það og var það samþykkt. En á síðasta vorfundi
hafði verið sambykkt í einu hljóði, að „skrifa ætti bænarskrá til
alþingis um þetta málefni og senda afskriftir af henni um allt
land, og síðan til einhvers þess alþingismanns, sem menn hefðu
traust á". Jónas sýndi nú fundarmönnum fram á, að mest væri
undir því komið, hvernig menn vildu skilja þessa
fundarsam-þykkt, og lét þá ganga til atkvæða um, hvort ætti að skilja
fund-arbókina svo, að ályktað hefði verið, að islendingar í
Kaupmanna-höfn skyldu senda bænarskrá af sinni hendi til alþingis. Féllust
*) NefndarálititS er í hrs. J. Sig. nr. 137 1 abr., með hans hendi,
undirritað af öllum nefndarmönnum, nema Brynjólfi.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>