Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— CLXVII —
flestir á, að svo ætti að skilja. Því næst leitaði forseti atkvæða
-um, hvort þeir vildu nú hafa breytt ákvörðuninni, sem
sam-þykkt hafði verið, eða ekki, og- voru 8 með, en 12 á móti, og1 leiddi
Jónas þannig þessa deilu til lykta á þann hátt, að Brynjólfur og
aðrir vinir Jónasar, sem voru þarna í minni hluta, urðu að sætta
sig við og að minnsta kosti fallast á, að hann hefði haft rétt
fyrir sér í því, að meining vorfundarins hefði verið. að
bænar-skráin yrði borin fram undir nafni íslendinga í Höfn, eins og.
hann hafði sagt þegar í upphafi þessarar deilu.*)
Jónas var nú réttra 37 ára að aldri, var fullþroska, en
ekk-ert farið að fara aftur likamlega, og því síður andlega. Hann
mun aldrei hafa viljað låta draga upp eða mála mynd af sér,
eins og margir landar í Höfn létu þó gera um þær mundir; eru
til myndir frá þessum árum af ýmsum vinum og kunningjum
Jónasar, er hér hefir verið getið, bæði séra Þorsteini Helgasyni,
Jóni Sigurðssyni, Jóni Hjaltalin, Páli yngra Melsted, séra Stefáni
Pálssyni, Steenstrup o. fl. Einnig var til þess konar mynd af
séra Tómasi, en liklega engin af Brynjólfi né Konráði. — En
Konráð skrifaði skömmu siðar lýsingu af Jónasi, ytra útliti
hans, og virðist eiga vel við að setja hana hér, svo sem
Kon-ráð orðaði hana:
„Jónas var gildur meðalmaður á hæð, þrekvaxinn og
limað-ur vel, en heldur feitlaginn á hinum seinni árum sakir vanheilsu,
vel réttur i göngu, herðamikill, baraxlaður og nokkuð
hálsstutt-ur, höfuðið heldur i stærra lagi, jarpur á hár, mjúkhærður, litt
skeggjaður og dökkbrýnn. Andlitið var þekkilegt, karlmannlegt
og auðkennilegt, enni allmikið, og likt þvi, sem fleiri enni eru
i hans ætt. Hann var réttnefjaður og heldur digurnefjaður,
granstæðið vitt, eins og oft er á Islendingum, og vangarnir
breiðir, kinnbeinin ekki eins há, og tiðast er á Islandi,
munn-urinn fallegur, varirnar mátulega þykkar; hann var
stóreygð-ur og móeygður, og verður þvi ekki lýst, hversu mikið fjör og
hýra var í augum hans, þegar hann var í góðu skapi, einkum
ef hann ræddi um eitthvað, sem honum þótti unaðsamt um
að tala".
Það er ekki líklegt, að þessi feitlægni Jónasar á seinni árum
hans hafi verið sakir vanheilsu, eins og Konráð hefir álitið.
Jón-as segir i bréfi sinu til Steenstrups 23. Júni árið áður, 1843, að
hann sé þá orðinn mjög feitur, en þá hafði hann lengi, undan-
*) Svo var gert ráS fyrir á fundarboSinu, að rætt yrði
„eitt-hvert efni úr náttúrufræSi íslands til skemmtunar", ef tími yrtSi
til, en úr því gåt ekki or?5itS.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>