- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / V. Smágreinar Dýrafræðislegs efnis, Ævisa A o. fl. /
CLXXXIV

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— CLXXXIII —

prentun í IX. árg. Fjölnis, svo sem þar má sjá;*) en af hinum
óprentuðu kvæðum hans kom ekkert, þvi að þetta sama ár tóku
þeir Brynjölfur og Konráð sér fyrir hendur að gefa þau út,
ásamt þeim kvæðum hans, sem prentuð höfðu verið áður.
Skrif-aði Benedikt Gröndal óprentuðu kvæðin upp,**) þau, sem
prent-uð voru, og nokkur fleiri, sem sleppt var þá. — Benedikt var
einn af nýliðum i Fjölnisfélagi og orti þá erfiljóð eftir Jónas,
sem voru prentuð í Fjölni, bls. 7—8, og sömuleiðis 3 smákvæði,
sem voru mjög sviplík þeim kvæðum Jónasar, „sem eru þýdd
eða likt eftir Heine", eins og Gröndal benti sjálfur á síðar.
Önn-ur erfiljóð eftir Jönas voru þá einnig prentuð i Fjölni (bls. 73—
74); þau mun Gísli Thorarensen hafa ort. — Síðasti
Fjölnis-fundur var 27. Mai, daginn eftir ártíð Jönasar. — En þegar þeir
Brynjölfur og Konráð voru búnir að låta prenta kvæði Jönasar,
buðu þeir Bökmenntafélaginu upplagið;***) var boðinu tekið
(26. April) og ákveðið að senda kvæðin öllum félagsmönnum.

Starfi Jönasar við lýsing Islands var ekki haldið áfram, er
hann dó. A fundinum, sem Bökmenntafélagið hélt skömmu eftir
fráfall hans, 16. Júni, komu að sönnu fram tilmæli frá Hannesi
Arnasyni um, að honum yrði gefin von um að komast að i stað
Jönasar, en bví máli var slegið á frest, enda var Hannes bá enn
við guðfræðisnám og lauk ekki pröfi fyr en 2 árum síðar. En bá
hlaut hann brátt, haustið 1848, annað starf, sem Jönasi hafði
verið hugað, kennslu i náttúrufræði við lærða skólann i
Reykjavik, og hafði Hannes hana á hendi lengi síðan.****)

Það rit um Island, sem þeir Jönas og Steenstrup ætluðu að
semja, kom aldrei, né heldur neitt stórt rit eða greinileg skýrsla
um rannsöknarferðir þeirra náttúrufræðinganna 1839—40.
Jönas hafði lokið þeirri ritgerð, sem af honum mátti vænta, um
brennisteinsnámana, en hana dagaði uppi hjá Steenstrup,
sömu-leiðis ritgerðir hans um eldgosin og landskjálftana. Sýnist þö
svo sem betur hefði farið á að koma þeim sem fyrst á prent, því
að beirra var þá fullkomin þörf. — Sumarið 1845, rúmum 3
mánuðum eftir að Jönas dö, tök Hekla að gjósa (2. Sept.) og
héldu gosin áfram allt haustið og veturinn og fram á næsta vor
(6. April). Var Schythe þá sendur aftur til íslands um sumarið

*) Því miöur voru frumrit Jönasar ekki varðveitt eftir að
bú-ið var að skrifa þau upp og prenta sögurnar.

**) Sbr. Dægradvöl, 164.

***) 1156 eint. fyrir 513 rd. 74 sk. alls, er skyldu borgast eftir
efnum og ástæöum. — Á haustfundi, 20. Okt., voru ger’ðar
ákveSn-ari samþykktir um borgunina.

****) GuSfrætSingatal, 139—40,

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:53 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/5/0196.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free