Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— CLXXXVIII —
(1846), rannsakaði hann Heklu og gosið, og skrifaði ágætt rit
um hvorttveggja; kom það út næsta ár.*) — Eftir það fór
Schythe að rita blaðagreinar og skáldsögur; bjó i Höfn, en
vor-ið 1850 fór hann til Chile í Suður-Ameríku, ritaði greinar um
kennslumál og lagði út á spönsku bok sina um Heklu; 1852 varð
hann prófessor i náttúruvísindum i Chile og næsta ár varð hann
landstjóri í einu fylki þar, syðst i landi; fór hann frá því
emb-ætti 1865 og varð síðan bankastjóri nokkur ár, 1870—74, í
Chil-lan. Hann dó 30. Jan. 1877.**) — Joh. Reinhardt prófessor lifði
aðeins 5 mánuðum lengur en Jónas, dó 31. Okt.***) Þá varð
Steenstrup eftirmaður hans; tók við prófessorsembættinu næsta
vor og gegndi því nær 40 ár. Hann varð frægur maður fyrir
vís-indalegar rannsóknir bæði í náttúrufræði og
steinaldar-forn-fræði. Hann andaðist i hárri elli (84 ára), 20. Júní 1897.****)
— En um þá 3 landa í Höfn, sem Jónasi stóðu næstir á síðustu
árum hans þar er það að segja í fám orðum, að Finnur
Magnús-son varð þessi árin fyrir miklum raunum sem vísindamaður, þar
sem ráðist var á frægar rúna-skýringar hans og færðar sönnur á,
að þær væru ekki réttar; tók hann sér þetta mjög nærri, því að
hann var mjög samvizkusamur maður í öllum greinum og mátti
ekki vamm sitt vita. Ætíð var hann mjög starfsamur, enda
ótrúlega mikill afkastamaður. Hann dó á aðfangadag Jóla 1847
66 ára gamall (f. 27. Ág. 1781)*****) Brynjólfur varð
skamm-lífur eins og beir séra Tómas og Jónas, hann dó 18. Okt. 1851.
Hann hafði verið skipaður fulltrúi í fjármálastjórninni mánuði
áður en Jónas dó (þ. e. 25 Apríl), eftir að hafa verið settur það
1 ár, en 10. Nóv. 1848 varð hann forstöðumaður íslenzku
stjórn-ardeildarinnar. Hann sat, og beir Konráð báðir, á
grundvallar-laga-samkomu Dana 1848—49 sem konungkjörinn fulltrúi fyrir
ísland. Hann var framúrskarandi maður bæði að gáfum og
mann-kostum.******) Konráð var hinn eini af þeim Fjölnismönnunum
fyrstu, sem entist nokkuð aldur. Honum var veitt kennaraemb-
*) Sjá Landfrs. ísl. IV., 37—46.
**) Landfrs. IV., 31—32 nm. og Mindeskrift for J. Stp., IV., 8.
***) Georg- Forchhammer lifSi full 20 ár lengur, dó 14. Des. 1865.
****) Um hann sjá m. a. Sunnanfara, II., 105—7, og Eimreiöina,
XX., 61—66. Hann kom aftur til íslands snöggva ferð 1874, á
þjóS-hátíðina. Sonur hans, Johannes, heitinn í höfuSiö á Joh. Reinhardt,
var misserisgamall, þegar Jónas dó, f. 5. Des. 1844; hann er nú
ný-lega dáinn (dó 3. Ág’. 1935). Hann var prófessor I sagnfræöi við
Hafnarháskóla 35 ár og ágætur vísindamaSur.
*****) Ævisaga Finns, eftir Grím Thomsen, er I N. Félagsr. IV.
******) Stutt yfirlit yfir ævi þeirra Finns og Brynjólfs er í
Minn-ingarriti Bókm.fél. 1916, bls. 153—55,
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>