Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 5 —
lag dýranna virðist að vera, má þó skipta öllum
dýra-myndum í fjórar deildir, er þykja vera gjörðar sín
eftir hverri fyrirmynd (typus). Þessar fjórar deildir
dýranna köllum vér beindýr, lindýr, Iiðdýr
og geisladýr.
1. Beindýr eður hryggdýr (animalia
verte-brata).
Helztu einkenni þeirra eru þessi: Heili og mæna
eru hulin beinum, er heita hauskúpa (cranium)
oghryggur (columna uertebralis). Beggja megin
hryggjarins eru rifin (costœ) og útlimirnir (artus).
Öll beinin til saman talin heita beinagrind
(see-letus, Skelet), og eru það innviðirnir í líkömum
þess-arar dýradeildar. Vöðvarnir (musculi) liggja utan
á beinunum og eru þeir festir á þeim. Innyflin eru
hulin innan-í búknum. Öll beindýr hafa rautt blóð,
vöðvahjarta og tvíkjálkaðan munn, er lýkur sér upp
, þversum. Þau hafa fjögur aðgreind skilningarvit á
höfðinu og aldrei íleiri útlimi en fjóra. Kynið er
jafnan sundurgreint.
Hinar 3 deildir dýranna er vant að kalla einu
nafni beinleysingja (animalia non uertebrata),
af því þau hvorki hafa hrygg né önnur b<-in
innan-undir vöðvunum. Þeim má stuttlega lýsa á þessa leið:
2. Lindýrin (animalia mollusca) hafa vöðva,
sem fastir eru á einni saman húðinni, en húðin er
nokkurs konar mjúkur hólkur eður skýla, er dregin
verður sundur og saman á ýmsa vegu, og myndar
hún oftlega utan-um sig skeljar eður kufunga. Innan-í
skelinni eru innyflin og sinakerfið. Það eru
smá-hnút-ar, fastir saman á sinataugum; liggja þeir hinir
merk-ustu utan-um vælindismunnann og kalla menn þá
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>