Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 6 —
heila (cerebrum). Flest-öll lindýr hafa að eins tvö
skilningarvit, smekkfæri og augu (ein ætt lindýranna,
kolkrabbarnir, heyra), og vantar þau þó margsinnis.
Þau hafa fullgjört æðakerfi og andfæri greind frá
öðrum pörtum líkamans. Næringarfærin eru framt að
því eins vönduð og i beindýrunum>^
3. Liðdýrin (animalia artiçulata) hafa
þver-skorur á kroppskýlunni, er skipta henni sundur i
hringa, harða eður lina. Vöðvarnir eru festir á innra
fleti kroppskýlunnar. Sinakerfið eru tveir strengir, er
liggja eftir kviðnum endilöngum og eru með
smá-hnútum hingað og þangað. Fremsti hnúturinn liggur
við vælindismunnann og er hann kallaður heili, þótt
hann sé öngvu stærri en hinir. Þegar liðdýr hafa
kjálka, ljúkast þeir sundur til hliðanna, svo munnurinn
snýr upp og ofan. Þau hafa sum fætur á hliðunum,
en þó eru mörg þeirra fótalaus.
í sumum kynþáttum liðdýranna vantar hjartað í
æðakerfið, enda hafa þau hvorki tálkn né lungu, en
í þess stað liggja opnar pípur (tracheæ) hingað og
þangað um allan búkinn, og eru þær í andfæra stað.
Þau hafa bæði sjón og smekk, og líkindi eru til, að
sum þeirra heyri.
4. Geisladýrin (animalia radiata) eru svo
sköpuð, að tilfinningargögnin og hvikfærin liggja i
hring utan-um miðdepil likamans, og leiðir af þessu
sköpulagi, afS þau hafa enga h æ g r i hliö né v i n s t r i,
og eru þvi stundum kölluð hliðleysingjar
(animalia asymmetrica). Líkjast þau i þessu tilliti
urtun-um, sem allar eru skapaðar með slíkum hætti. Þau
hafa hvorki greinilegt sinakerfi né sjáanleg
skilningarvit. Nokkrar menjar æðakerfisins er að sjá í sum-
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>