Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 30 —
ein kind á stangli, sem annað hvort rekur dauða af
sjó eða hleypur övörum upp á grynningar. Þegar svo
rekur dauðan hval, er hann næstum því ævinlega svo
skaddaður, að mynd hans er orðin afskræmd og
inn-yfli hans og öll liffæri svo skemmd, að þau eru
hvorki hæfileg til geymslu né rannsóknar; og þó
hval reki lifandi, ber það mjög sjaldan við, að
nokk-ur dýrfræðingur sé viðstaddur.
I.
KEPORKAK.
Svo kalla Grænlendingar reyðarfisk alþekktan við
Grænland. Otto Fabricius hefir sjálfur séð og skoðað
einn þeirra og lýsir honum á þessa leið:
Hún hefir tvöfallt bláslrarhol, eður nánar
nasa-holur, hér um bil á miðju höiði, í uppstandanda hnúði,.
en getur samt lokað þvi með einlægu loki, svo það
sýnist sem eitt blásturhol. Skolturinn er beinn,
fram-dreginn og mjókkar æ meir, en endar samt með
býsna-digurri, snubbóttri trjónu. Ofan-á höfðinu, fyrir
framan blásturholið, eru þrjár raðir af kringlóttum
kúl-um. Neðri skolturinn er líiið eitt styttri og mjórri(?)
en efri skolturinn og beygist upp á við. Augun eru
fyrir aftan blásturholið (til hliðanna á höfðinu), á
vöngunum, viðlika stór og í blöðrusel (litlu minni en
kýraugu). Hlustirnar mjög litlar, fyrir aftan augun.
í efra gómnum hefir hún mörg skíði, — svört,
naum-ast fet á lengd; að framanverðu er samt millibil
skiðalaust. Gómurinn er hvitur. í neðra gómnum er
hvilft, sem greypir um skiðin, er bunga út og niður
á við. Tungan er stór, hrukkótt og feit, lifurrauð.
Bægslin eru stór, langeggjuð (sem togið egg), fram-
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>