- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / V. Smágreinar Dýrafræðislegs efnis, Ævisa A o. fl. /
31

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 31 —

dregin, jöfn að aftan og íbogin í handliðnum aftur á
við, en hlykkjótt (með hvilftum og bungum) á
fram-röndinni. — Bakbægslið er hér um bil beint upp af
borunni, saumhöggvað (uppþunnt, niðurþykkt), með
íhvössu horni, hækkar upp að framan aftur á við,
og gengur næstum því þverhnýpt niður að aftan.
Þó eru þær, sem hornið (bakbægslið) beygist á lítið
eitt af[t]ur á við. Á sumum er það líka lengra og
á sumum skemmra (Fabr. miðar við sitt dýr og fer
hér eftir sögusögn Grænlendinga, sem vel geta hafa
talað um einhverja aðra tegund reyðarfiska).
Búkur-inn er langur og sivalur, digu[r]stur fyrir aftan bægslin
og mjókkar þaðan æ meir, einkum frá rifjunum aftur
að stirtluenda, sem ekki er meir en
karlmanns-feðm-ingur. Aftur frá bakbægslinu gengur hvöss mön aftur
á sporð. Sporðurinn stendur bversum, tviskiptur eða
sýldur, með sporðskoru á miðju. Sporðblöðin eru
bogadregin, ydd, jöfn (bein) á framröndum og
hlykkjótt að aftan. Hún hefir á kviðnum margar og
djúpar hrukkur (eður skorur) frá kverk og til nafla,
og ganga þær hrukkur hver utan-um aðra á þann
hátt, að tvær koma jafnan saman að framan og aftan,
svo þær hinar innstu eru stytztar og hinar yztu
lengstar. Hún getur bæði þanið þessar hrukkur út
og dregið þær saman. Hún er svört að ofan. Kverkin
og bægslin og sporðurinn er allt hvítt að neðan.
Skorurnar á kviðnum eru blóðrauðar innan, en
garð-arnir millum þeirra, og allur kviðurinn, og
sporður-inn neðan, er allt svartflekkótt. Hveljan er tvöföld,
úthúð (epidermis) þykk og innhúð þunn, hvít, feitari;
því næst kemur spikið, þykkt, en lýsisminna en á
öðrum reyðarfiskum; innst er rautt kjöt. Þessi reyður

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:53 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/5/0243.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free