Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 34 —
mælingum, en Rudolphi náttúrufræðingur rannsakaðí
dýrið og lýsti því. Beinagrindin er geymd í
líkskurð-arsal Prússa-konungs í Berlín.
Tegundar-einkenni: Neðri skolturinn er
lengri en efri skolturinn, og margar vörtur á
kjálk-unum, settar skegghárum. Bægslin því nær þriðjungur
allrar lengdarinnar, hlykkjótt á báðum röndum og
snubbótt fyrir endann.
Lýsing: Höfuðið er strýtumyndað og mikið að
sinu leyti (dálitið meir en fjórðungur lengdarinnar)..
Efri skolturinn styttri en neðri skolturinn, næstum því
beinn, lágur, með hvassri trjónu og meir en 800
skíðum. Neðri skolturinn lengri og breiðari; kringdur
að framan, með mörgum hálfhnöttóttum smákúlum
eður vörtum á kjálkunum, og út úr þeim hálfrar álnar
löng skegghár eður kampar. Augun eru lítil, rétt
fyrir ofan munnvikin. Búkurinn sívalur, afturdreginn,
harðla digur og stuttur í samanburði við höfuðið..
Bægslin afarlöng og heldur mjó, hlykkjótt, eður með
bungum og hvilttum á allri neðri röndinni, fyrir
endann og til þriðjunga upp á efri röndina, sem úr þvi
er jöfn eður slétt. Þau eru og bogin litið eitt í
hand-liðnum, á þann hátt, að alboginn snýr niður, en
bótin upp. Bakbægslið byrjar upp-yfir naflanum og
hækkar í burgu aftur á við, og endar, þar sem það er
hæst, á snubbóttu, afturbjúgu horni, svo fyrir neðan
þetta horn er sjáanlegur skúti i afturrönd bægslisins,.
rétt upp-yfir kálfraufinni, og úr því lækkar bægslið
jafnt aftur-eftir og verður að hryggjarmön, sem liggur
eftir stirtlunni aftur á sporð. Sporðurinn er
hálf-tunglaður, með litilli sýlingu eður sporðskoru;
fram-rönd hans er bogadregin, þykk og ávöl, en aftur-
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>