- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / V. Smágreinar Dýrafræðislegs efnis, Ævisa A o. fl. /
41

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 41 —

II. kyn: Smyrlar (astur, Bechst.).

[1 tegund:] Smyrill, tittlingasmyrill (a.
ni-sus, f. nisus, Lin.).

Önnur ættkvisl: Ernir (aqvila, Briss.).

III. kyn: Hafernir (haliaetus, Sav.).

1. tegund: Örn, assa (h. albicilla, Lin.);
arn-höfðóttur, með gulu nefi.

2. tegund: Haförn (h. ossifragus, Nilss.); stærri,
með svörtu nefi og svarmórauður á höfði og hálsi;
gæti verið ungur albicilla(?)

Þriðja ættkvisl: Uglur (strigini).

IV. kyn: Daguglur (surnia, Dumer).

*1. tegund: Fjallugla, snjóugla (surnia
nyc-tea); stór, hvit, með svargráum flekkjum og
þver-röndum; sjaldgæf; hrekur stundum til íslands (frá
Grænlandi) í stormum og útnorðan-kaföldum.

V. kyn: Náttuglur (ulula, Bonap.).

1 tegund: Skógarugla (u. brachyotos, L.);
miklu minni; með stuttum fjaðurtoppum á höfðinu,
sem líkjast eyrum tilsýndar, flekkótt á bakinu, með
mósvörtum og ryðgulum flekkjum, bleikgul að neðan,
með mórauðum langstrikum.

Ugla þessi er mjög sjaldsén, en þó á hún
sjálf-sagt heima í landinu, og heyrast stundum til hennar
óþekkileg læti: uúú, äü aú, likt og hvolpur gelti
ámátlega. Það er sjálfsagt sama uglan og Eggprt
01-afsson talar um, og uglur veit ég hafa sézt suður á
Vatnsleysuströnd, austur á Rangárvöllum, upp-í Borg-

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:53 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/5/0253.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free