- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / V. Smágreinar Dýrafræðislegs efnis, Ævisa A o. fl. /
42

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 42 —

arfirði og víðar. Sjálfur hefi ég oft heyrt til hennar í
ungdæmi minu undir fjöllum í Eyjafirði og haft eina
i höndum lifandi, sem náðist á Skildinganessmelum
haustið 1840; höfðu hrafnar elt hana niður úr lofti,
og lifði hún í varðhaldi hálfan mánuð; og með því
dýri er hin íslenzka náttuglutegund nú loksins
kom-in í Ijós.

Annar ættstofn: Gangfuglar (ambulatores).

I. kyn: Starrar (sturnus, L.).

*1 tegund: Starri (st. vulgaris, L.); svartleitur,
með purpurarauðri, grænni og blárri málmslikju,
ýrður á bakið með ryðhleikum smáflekkjum. Hann
verpir ekki á íslandi og á þar ekki heima, en
næst-um á hverju ári hrekur nokkra í landið vindurinn.
Ég hefi séð og vitað þá skotna þar bæði sumar og
vetur, t. a. m. einn við Akureyri haustið 1836, og
nokkra á Suðurnesjum og í Vestmannaeyjum snemma
vetrar og á útmánuðum.

II. kyn: Hrafnar (corvus, L.).

1. tegund: Hrafn, krummi (coruus coraxj.

*2. tegund: Kráka (c. cornix); öskugrá, með
svörtu höfði, vængjum og stéli. Hún á ekki heima á
íslandi, en sést þar samt endur og sinnum, einkum
sunnan lands. 1819 sá Faber fáeinar krákur fyrir
norðan land í júlí og ágúst um sumarið.

3. tegund: Færeyja-hrafn (c. corona),
»svarta-kráka«, alsvartur; á stærð og allan vöxt sem
grá-kráka; sést siöku sinnum fyrir sunnan, einkum seint
á sumrum, og hrekur þangað liklega úr Vesturheimi.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:53 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/5/0254.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free