Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 43 —
Það er sú tegund, sem Eggert Ólafsson hafði í
Við-ey og kvað braginn um.
*4. tegund: Hrókur (c. frugilegus); húfan svört,
með fagurblárri slikju; hnakki og vangar öskugráir.
Þenna fugl sá Steenstrup á Suðurlandi sumarið 1839.
*5. tegund: Skaði (c. pica); stélið ermjöglangt,
liturinn svartur, með blárri og grænni slikju; axlir,
niður-bringan og kviðurinn hvítt. — Veturinn 18..
hrakti til Eyjafjallasveitar 15 eða 16 skaða í
land-synningsstormi; flæktust þeir þar nokkra stund og
dóu svo úr vesæld.
III. kyn: Svölur (hirundo, L.).
*1. tegund: Hagasvala (h. rustica); svört, með
blárri slikju; enni og kverk rauð-jörp, bringa og
kvið-ur hvít.
*2. tegund: Bæjarsvala (h. urbica); svört,
með blárri slikju; bringa, kviður og vélstæði að ofan
og neðan hvitt; stélfjaðrirnar einlitar.
Svöiur eiga ekki heima á íslandi og verpa þar
ekki, en sjást þar þó stöku sinnum framan-af sumri,
bæði fyrir sunnan og norðan, einkum hagasvalan.
IV. kyn: Þrestir (turdus, L.).
1. tegund: Skógarþröstur (t. iliacus);
al-gengur um allt land, þar sem er birkiskógur.
*2. tegund: Kolþröstur (í. merula); svartur,
með gulu nefi. Sést stöku sinnum á Suðurlandi.
*3. tegund: Söngþröstur (t. musicus);
mó-leitur, með ryðgulum undirvængskýlum og svörtum
flekkjum, aflöngum, á bringu og kviði. Hefir sézt á
Vestmannaeyjum.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>