- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / V. Smágreinar Dýrafræðislegs efnis, Ævisa A o. fl. /
54

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

54 —

YFIRLIT YFIR FUGLANA Á ÍSLANDI.

(Lesið upp á fundi fslendinga i Kmh. 7. Febr. 1835).

Góðir landar!

Ég tiefi í þetta sinn ásett mér að tala um einn
af dýraflokkunum, sem íinnast á íslandi, ef þið getið
haft þolinmæði að hlýða til — og hefi eftir
tilmæl-um sumra ykkar valið fuglana. Það er einmitt þessi
flokkur, sem flestir hafa skemmtun af að kynna sér,
þó þeir að öðru leyti hafi ekki löngun eða tækifæri
til að iðka náttúrufræðina. Og það er heldur engin
furða, þvi fuglarnir eru svo fallegir og fjörugir og
skemmtilegir, og bjóða svo göðan þokka af sér, að
menn, sem ekki alast upp í borgum, eins og hérna í
Kaupmannahöfn, heldur, eins og við, upp til sveita,
eða á góðum bæ við sjóinn, hafa undir eins i
ung-dæmi sínu orðið að taka eftir þeim og haft af þeim
marga gleðistund. Er það nokkur ykkar, sem ekki
hefir lifnað við, þegar þið heyrðuð til lóunnar og
hrossagauksins fyrst á vorin? Og mér er, held
ég, óhætt að spyrja: Er það nokkur ykkar, sem ekki
hefir átt sér hreiður, og þótt vænt um það, og glaðzt
af hjaita, þegar hann i fyrsta sinn fann ungana, sem
skriðnir voru úr egginu, og sá, hve mikið hjónin
unn-ust og hvernig þau hjálpuðust að að fæða börnin
sín og færa þeim orma og flugur og annað sælgæti
i nefinu?

Áður en ég fer að tala um þær einstöku
fugla-tegundir, sem finnast heima á íslandi, finnst mér bezt
aft minnast lítið eitt á eðli þessa dýraflokks alls, og
renna auga yfir, hvað það er, sem greinir fuglana frá

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:53 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/5/0266.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free