- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / V. Smágreinar Dýrafræðislegs efnis, Ævisa A o. fl. /
60

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 60 —

myndin líti stundum út viðlíkt og ef á einhverju
blómi blaðaleggina vantaði eða hálf blöðin, og sætu
þau svo föst á stönglinum. — Mér þykir gott, ef
mér ekki tekst svo, að blöðin snúi niður á við eða
stöngullinn komi á undan rótinni.

Fyrsti hópur: Gripfuglar (raptores).

Fyrsta deild: Dagfuglar (aues rapaces diurnœ).

I. Arnakyn (aquilá).

1 tegund: Örn, assa, sjóörn (aquila
albi-cilla) á heima á íslandi og byggir sér hreiður í
klett-um. Ung er hún dökkgrá, með svart nef, en fær meö
aldrinum gult neí og hvítt stél, og gránar þá um
höfuðið. Þessi litaskipti hafa valdið því, að sumir
hafa gjört 3 tegundir úr einni, og sumir standa fast
á því enn. Þá kalla þeir gömlu ömina hvíthöföu
(a. leucocephala); en allt er þó reyndar sami fuglinn.
Örnin verður 100 ára eða meira og getur flogið
þrjár þingmannaleiðir á klukkustundinni.

II. Fálkakyn (falco).

1. tegund: Fálki, valur, veiðifálki (falco Is’
landicus)-, þennan mikla veiðigarp þekkið þið allir.
Hann fer varla úr landi, nema ársgömlu fuglarnir,
sem fljúga stundum til Þjóðverjalands. Það er enn
óvist, hvort hvíti fálkinn er gamall fugl, eða að það
er kynbreyting; ég er á fyrri meiningunni.

2. tegund: Smyrill, dvergfálki (falco
œsa-lorí)\ hann fer til Þjóðverjalands á veturna, en kemur
heim með tittlingunum á vorin — því hann lifir ekki

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:53 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/5/0272.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free