Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 59 —
sem lifa á skelfiski og öðrum fjörumat, eru kyrrir
allan veturinn, af því þá brestur ekki viðurværi. Þess
vegna er það líka, að svo fáir skógfuglar koma til
íslands á vorin. Ef þar væru hnetur og skógarber
handa þeim, og runnar að byggja hreiðrin i eða háar
limar að hengja þau á — eins og þeir gjöra sumir —
þá myndi fara að fjölga heima; þvi varla held ég
nokkur fugl væri lengi að telja eftir sér tveggj i eða
þriggja daga ferð, til að geta búið i svo fallegu og
og skemmtilegu landi; ég þekki fuyla, sem ekki hafa
horft í það, og heldur unnið til að lifa á loxia serinus
(Scopoli), sem þýzkir kalla; og það voru þó karlar,
sem ekki fara norðar en til Sveitzaralands og vilja
ekki skarn-nýta að búa i miðri Norðurálfunni.
Á íslandi hafa, það ég veit, náðzt 87 eða 88
fuglategundir, sem hafa þekkzt, svo menn geti sagt,
hverjar þær séu, og varla munu vera margar
teg-undir ófundnar, sizt af fuglum, sem eiga þar heima
að staðaldri; en verið getur, að útlenzkir fuglar
flæk-ist þangað endrum. og sinnum, og náist eða sjáist,
svo menn þekki þá, og úr því er þeim bætt við
töl-una. Þess konar gestir 7 eða 8 eru nú á meðal
hinna áðurtöldu, svo að réttu lagi get ég ekki talið
meir en 80 íslenzkar fuglategundir, sem
verpa í landinu og eru þar að staðaldri. Samt má
ekki sleppa hinum og skal ég þvi nefna þá alla samt,
eftir þeirri röð, sem mér þykir fara bezt; og getur
hún samt ekki orðið svo, aó alstaðar sjái>t
skyldug-leikinn, þvi viða verða í henni eyður, sem ekki verða
fylltar upp — liðirnir, sem eiga i þær, búa hingað og
þangað út um heiminn — og verða menn svo að
draga hitt saman, og getur þá ekki hjá þvi farið, að
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>