- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / V. Smágreinar Dýrafræðislegs efnis, Ævisa A o. fl. /
69

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 69 —

hneggjar sjaldan, nema á flugi, og halda því margir
enn i dag, að hann gjöri þennan hávaða með
vængj-unum. Þegar líður á sumarið og hann er seztur á
egg, verður hann eins og annar fugl; þá leggst hann
niður í mýrar og flóa innan um grasið og flýgur þá
aldrei að kalla, nema hann sé rekinn á fætur, enda
hneggjar hann þá aldrei. Snemma í Oktöber fer hann
á stað; þó verða einstaka hræður eftir við laugar
og hveri, þar sem jörðin er þíð og pöddurnar lifa;
því hrossagaukurinn etur ekki annað en orma og
skorkvikindi.

X. Keldusvín (rallus).

1 tegund: Keldusvín (rallus aquaticus). Er
vetur og sumar á íslandi, og á þó illt, en getur ekki
flogið burt, því vængirnir eru of stuttir. Það er ekki
svo lítill fugl, á vöxt við stelk, en fóta-lægri. Nefið
er rautt með gráum broddi, augun rauð, fæturnir
horngráir, bakið svart með mórauðum fjaðra-röndum,
brjóstið og kverkin og vangarnir öskugrátt, með
blá-leitri slikju, maginn allur gulgrár og hvítt undir
vængj-unum. Keldusvinið felur sig á daginn og er mest á
ferð á nóttunni. Hljöðin i því eru líkust eins og
mað-ur sveifli tág.

XI. Tildra (strepsilas).

1 tegund: Tildra (strepsilas collaris). Algengur
fugl fyrir sunnan og vestan. Kemur eftir sumarmálin
og er þá enn i vetrarbúningi. Snemma i Mai skiptir
tildran fiðri og fer þá eitthvað að verpa, líklega upp
i óbyggðir. í Ágúst-mánaðar-lok koma þær aftur
hóp-um saman með ungana niður til sjóar og eru þar
rúman mánuð, þar gað til þær fljúga burt; einstaka

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:53 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/5/0281.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free