Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 68 —
þá i sumarbúningi, blóðrauður á öllu brjóstinu. —
Þá fer hann burt að verpa, líklega upp á fjöll, og
sést ekki aftur fyr en seinast í Ágúst, og er hann þá
aftur orðinn grár á brjóstinu. Hann er þá um
strönd-ina hingað og þangað, þar til hann flýgur burt í
miðjum September.
4. tegund: Kragi, áflogakragi (tringa
pug-nax). Illur fugl og harðfengur. Hann er ekki íslenzkur.
Faber segir kvenfugl af þeirri tegund hafi verið
skot-inn i Reykjavik um haustið 1820. Steggirnir hafa
fjaðrakraga um hálsinn, mislitan, og sinn litur á
hverj-um. Um brundtímann eru þeir óðir, og dettur þá
fiðrið af þeim upp fyrir augu, og koma gular vörtur
i staðinn. Svona ganga þeir með úfinn kragann og
liggja í sífelldum áflogum.
VII. Stelkakyn (totanus).
1 tegund: Stelkur (totanus calidrís). Kemur i
miðjum Apríl og fer á stað fyrst í Október; þó eru
sumir eftir á veturna.
VIII. Jaðrekukyn (limosa).
1 tegund: Jaðreka (með svörtu stéli; limosa
melanura). Fyrir austan fjallið, í Árness- og
Rangár-vallasýslum; fer burí á veturna. Þetta fuglakyn er
ólikt öðrum i því, að kvenfuglinn er bæði stærri og
litfegri en karlfuglinn. Það eru fáir fuglar aðrir, að
fráteknum óðinshananum.
IX. Snípukyn (scolopcix).
1 tegund: Hrossagaukur, mýrisnipa
(sco-lopax gallinagó). Skemmtilegur fugl á vorin. Kemur
um sumarmál, og er þá styggur og flýgur hátt. Hann
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>