- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / V. Smágreinar Dýrafræðislegs efnis, Ævisa A o. fl. /
82

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 82 —

liggur undir flóum og stöðuvötnum. Þetta ríki
vatn-anna er miklu víðara um sig en þurlendið og
stend-ur ekki heldur á baki þess að fjölda og margbreytni
dýranna, sem í því búa. Mikill hluti þess frumefnis„
sem lifnað getur eftir eðli sínu, verður á þurlendinu
að grösum eða trjám, og grasbítirnir lifa á
aidin-unum, er þannig verða að dýrslegum likama og
hæfi-leg til fæðslu handa kjötætunum, en það er varla
meir en helmingur landdýranna. Aftur í vötnunum, og
einkanlega í sjónum, þar sem urtirnar eru miklu
færri*), lítur það út, eins og allt sé kvikt eða
við-búið að lifna. Dýrin lifa þar, að kalla má, einungis
hvert á öðru. Þar eru dýrin smæst og stærst; í
hverj-um smádropa felast yrmlingarnir þúsundum saman,.
og hefðu eilíflega dulizt, væru ekki sjónglerin, en
hvalirnir eru fullum tuttugu sinnum stærri, en stærstu
dýrin á þurlendinu. Þar er líka margbreytnin mest í
öllu því sköpulagi, sem náttúrufræðingarnir skipta
dýrunum i flokka eítir, og má svo kalla, að úr
hverj-um flokki finnist eitthvað í sjónum; þvi jafnvel af
fuglunum, sem einkum hafa bústað í loftinu, er
sumra sköpulagi svo varið, að þeir ala mestallan
aldur sinn á bylgjum sjávarins**). Margar
spen-dýra-tegundir eru að eingöngu ibúar sjávarins, bæði
selir, sækýr og rostungar, og þar á ofan öll
hvala-kyn, sem ekki komast upp á landið, en hljóta

*) Professor Schouw í Kaupmannahötn, ágætur grasafræöingur,.
segir svo, að menn ættu að skipta öllum urtategundum í tvo flokka,
land-urlir og vatnsurtir, yrði það varla meir en fimmtugasta hver
tegund, sem ætti heima i seinna flokkinum.

**) Mörgæsir (Pinguin, aptenodytes, Linn.) eru svipaðar
geir-fuglum; eiga heima i suðurhöfum, og fara aldrei á land, nema til að verpa.
Þær geta ekki gengið á þurru og verða að draga sig á kviðnum.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:53 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/5/0294.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free