Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 85 —
að það geti runnið, hlýtur blóð þeirra að vera kalt;
og þar af leiðir aftur, að fjörið í þeim er minna,
til-finningin ónæmari, og hræringin daufari en í fuglunum
og spendýrunum. Þó heilinn sé áþekkur, hlýtur hann
að vera þar eftir minni, og skilningarvitunum svo
háttað, að þau naumast geti hrifið á hann
kröftug-lega. Satt er það einnig, að fiskarnir eru allra
hrygg-dýra óviðkvæmastir. Af því þeir lifa ekki í loftinu,
sem veldur því, að hljóðin geta orðið til, eru þeir Jíka
raddlausir, og tilfinningar þær, sem röddin vekur eða
viðheldur, eru þeim með öllu ókunnar. Augun eru
grafkyr í höfðinu, andlitið varla nema bein, uggarnir
liðalausir og bærast hvergi, nema upp-við búkinn
— svo þeim er fyrirmunað að breyta sínu yfirbragði
og låta í ljósi tilfinningar sínar. Eyrað liggur
öld-ungis inn-i hauskúpunni og hefir hvorki hlust eða
kufungsgöng, en er að eins búið til úr fáeinum
belgj-um og pípum, og megnar því varla að gera mun á
hæstu hljóðum; enda hafa þeir lítið með heyrnina
að gjöra, fyrst að þeim er ætlað að lifa í ríki
þagn-arinnar og eintóm kyrð er umhverfis þá. Eins er með
sjónina, að hún kæmi fiskunum að litlu haldi í
hyl-dýpinu, sem þeir lifa i, ef hávaðinn af þeim hefði
ekki eignazt svo stór augu, að dimman bættist upp
með því. Samt geta þeir varla neitt rennt augunum,
og þvi síður dregið þau sundur og saman, eftir því
sem fjarlægð hlutanna krefur. Regnbogahimnan í auga
fiskjarins er óumbreytt og augasteinninn jafn-stór,
hvernig sem á birtunni stendur. Þetta auga vöknar
ekki af tárum og engin eru augnalokin að hlífa þvi.
Augað í fiskinum er ekki orðið nema dauf eftirmynd
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>