- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / V. Smágreinar Dýrafræðislegs efnis, Ævisa A o. fl. /
86

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 86 —

þess hins fagra og fjöruga skilningarvits, sem prýðir
hinar æðri dýrategundir.

Aí því fiskarnir geta ekki aflað sér fæðslu með
öðru móti en elta skepnur á sundi — en þær fara
undan eins og þær orka mest — og geta ekki náð
þeim með öðru móti en að gleypa þær í sig, þá væri
næmur smekkur þeim að öngvu gagni, þótt hann
væri þeim áskapaður; enda er það auðséð á
íung-unni, að hún er eins sljó og geta mátti nærri á
brúk-unarleysinu, því hún er næstum óhræranleg og
ann-aðhvort ekki nema bein eða þakin tanngöddum, og
sinarnar, sem að henni liggja, eru bæði fáar og
veik-ar. Ekki þurfa fiskarnir heldur eins oft á nösunum að
halda, eins og hin dýrin, sem anda í loftinu og draga
sífellt að sér margs konar ilmtegundir inn í gegnum
nasirnar. Hvað tilfinninguna snertir, þá gætir hennar
varla um búkinn fyrir hreistrinu og hörkunni á
ugg-unum, svo hún er næstum öll flúin fram á varirnar,
sem eru sjálfar á margs konar fiskitegundum ekki
nema bein, bæði harðar og tilfinningarlausar. Þetta
sýnir, að það eru fá skýr og greinileg áhrif, er
skiln-ingarvit fiskanna geta á móti tekið; hlutirnir i
kring-um þá bera fyrir þá eins og í þoku; harla fátt hafa
þeir til skemmtunar, og utan-að þurfa þeir ekki að
óttast önnur bágindi en þau, sem geta orsakazt af
meiðslum. Fyrir utan riðtimann stunda þeir ekki
ann-að en stilla hungur sitt; að gleypa i sig er allt og
sumt, sem þeir geta haft fyrir stafni, þegar þeir eru
ekki að æxla kyn sitt; að þessu einu saman miðar,
að kalla má, allt þeirra sköpulag, og lögunin á sporði
og uggum; þeirra sifelld iðja er þvi annaðhvort að
leita sér bráðar eður flýja óvini sina. Eftir þessu

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:53 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/5/0298.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free