Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 89 —
klettum og hraunbrúnum, eða þeir steypast ni ður
hyldýpið; líferni þeirra er þegjandi og breytingalaust;
eintóm græðgin rekur eftir þeim, og hún ein veldur
því, að þeim verður kennt að hlýða nokkrum
bend-ingum. En þó að fiskarnir njóti fárra unaðsemda, eru
þeir samt gæddir alls konar fegurð og skrauti;
sköpu-lag þeirra er margbreytt og fagurt, og litirnir hreinir
og aðdáanlega skrautlegir. Þá vantar ekkert til þess,
mennirnir skuli taka eftir þeim, og að vísu lítur það
út, eins og skaparinn hafi einmitt ætlazt svo til. Til
hvers hafa fiskarnir þegið fegurð málmanna og alls
konar gimsteina, — sem á þeim ljómar? Til hvers
hafa þeir þegið friðarbogans skinandi litu, sem leiftra
af þeim i böndum og blettum og bylgjóttum línum,
með óumræðanlegri fegurð og reglu i samblandi
lit-anna? Til hvers hafa þeir þegið allt þetta, sem með
naumindum geta grillt hver til annars i djúpinu, þar
sem þeir búa, — því örðugt á ljósið með að komast
þangað niður; og enda þó þeir sæju hver annan,
hverjar tilfinningar mundi fegurð litanna geta kveikt
i þessum fáráðlingum?
Mannkynið hefir lika á öllum öldum gefið
mik-inn gaum að þessum dýraflokki. Af því fiskarnir eru
svo ágætlega fallnir til manneldis, eru þeir líka
ein-hver fyrstu dýrin, sem mennirnir fóru að ofsækja og
veiða. Margar fiskimannaþjóðir eru miður siðaðar en
hirðaraþjóðirnar, og meðil hinna menntuðustu þjóða
er það víða fjöldi manns, sem lifir eingöngu á
sjáv-araflanum. Eyjamenn og strandbyggjar hafa njósnir
af hinum margbreyttu tegundum, sem felast milli
klettanna og skerjanna, og hugaðir sjómenn hætta
sér langt út á djúpið til að ráðast á herfylkingar
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>