- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / V. Smágreinar Dýrafræðislegs efnis, Ævisa A o. fl. /
88

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 88 —

in fremur en hinir blauðu. Þeir verða að gjöra sig
ánægða með að frjóvga þau egg, sem þeir þekkja
ekki móðurina að og sjá aldrei ungana úr. Einnig er
móðurgleðin ókunnug flestum tegundum fiskanna;:
fæstir af þeim byggja sér hreiður eður annast unga
sína. í stuttu máli: allur þeirra búskapur er, að kalla,
í hverju smáatviki öldungis gagnstæður fuglanna.

Loftbúanum er veitt að líta yfir víðlendið og
heyra hvert hljóð og hverja rödd, sem fyrir ber; lika
hefir hann hljóðin eftir. Og þó að nefið sé hart og
búkurinn hulinn fjöðrum til að standast kuldann hátt
upp-í loftinu, þá er tilfinningin i klónum eins næm og
hún getur orðið. Fuglinn nýtur yndis af hjónabandinu
og föðurástinni og rækir með hugrekki skyldu sina?
hjónin aðstoða hvort annað og verja í sameiningu
unga sina; hreiðurgjörðin er snilldarverk, og á
tæk-um tima keppast þau við að vinna að henni bæði
samt. Meðan móðirin ungar út eggjum sinum með
aðdáanlegu þolgæði, situr bóndinn hjá, og syngur þá
löngum til að stytta henni stundir, og er nú ekki
óblíðari i hjúskapnum en hann var fjörugur i
tilhuga-lifinu. Séu fuglar teknir, fá þeir ást á eiganda sínum,.
hlýða honum og vinna það, sem hann leggur fyrir
þá. Fálkinn fer á veiðar eins og hundur og kemur
aftur sjálfkrafa úr háa lofti, þegar hann heyrir rödd
sins lánardrottins. Sumir fuglar tala mannamál, og
það er með naumindum, menn fá af sér að segja,.
þeir hafi ekki nokkurs konar skynsemi.

íbúi vatnanna tekur ekki tryggð við menn; hann
þekkir öngva ást og ekkert mál; hann veit hvorki,
hvað það er að eiga konu og börn, né að byggja
sér hæli. Þegar hættan dynur á, felast fiskarnir undir

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:53 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/5/0300.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free