Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 96 —
ÍSLENZK DÝR.
ÞRIÐJI FLOKKUR: F I S K A R (PISCES).
A. Beinfiskar (osteopterygii).
Fyrsti ættstofn: Brodduggar (acanthopterygii).
Fremstu þanir bakuggans með hvössum
brodd-um, sem standa út úr roðinu; sé ekki nema einn
bakuggi, eru þanirnar í framhluta hans hvassar og
harðar, en hinar í afturhlutanum mjúkar og oftlega
liðaðar; en séu tveir bakuggar, eru hvassar þanir í
hinum fremra og mjúkar í hinum aftara; stundum eru
að eins fáar, íitjalausar broddþanir í stað fremra
bakuggans.
Fyrsta ætt: Aborrar (percoidei).
Flestir með hörðu, snörpu, föstu hreistri;
hvor-tveggja tálknskilurnar næstum því ætíð tennt með
hvössum broddum á röndunum; tennur á kjálkunum
og bæði á plógbeininu (vomer) og gómbeinunum;
kviðuggarnir oftast nær undir eyruggunum.
I. kyn: Geirnefur (sphyræna).
Svipaður horníiski í sköpulagi, margar smátannir
í einni röft á snoppubeinunum og tvær stórar
krók-tennur fremst í innanverðum uppkjálkunum; nokkuð
aftar, með viki á milli, standa 3—4.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>