- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / V. Smágreinar Dýrafræðislegs efnis, Ævisa A o. fl. /
103

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 103 —

II. kyn: Loðnur (osmerus, Arted.).

Loðnur hafa tvær gisnar tannraðir á hverju
góm-’beini og fáeinar tennur fremst á plógbeininu;
sköpu-lagið er sem á silungum, nema hvað tálknskýlurnar
hafa ekki nema 8 þanir; kviðuggarnir standa
and-spænis framrönd bakuggans; þær halda til í sjónum
og üti fyrir árósum.

1. tegund: Loðsíli (osmerus (eperlanus)
vul-garis). — Búkurinn er langur og mjór, þvi nær
gagn-sær; hreistrið einkar-litið; sporðurinn mjög sýldur;
neðri skolturinn lengri en efri skolturinn. Tennurnar
litlar og hvassar, bognar inn á við; kjalugginn
langur og úrsniðinn. Þanirnar: B. 11, — kj. 17, — eyr.
11, — kv. 8, — sp. 19. Liturinn er ofan grár,
silfur-blágrænn á hliðunum, neðan hvítur með rauðri slikju;
uggarnir eru gráir og trjónan hvít. — Gaimard hefir
þetta loðsili meðal fiskimynda sinna frá íslandi. Það
gengur til hafs á veturna og heldur þar til, einkum
i Norðursjónum og Eystra-salti, en á sumrum gengur
það upp í ár til að hrygna.

2. tegund: Loðna, vorsild {osmerus (mallotus)
oillosus). Búkurinn breikkar (hækkar) fyrir aftan
got-raufina. Uggarnir eru stórir, og 22 þanir í
kjaluggan-um; sundrákin er loðin á karldýrunum. Lengdin er
5—6V2 þuml.

Þriðja ætt: Sildfiskar (clupeoidei).

Einn bakuggi, enginn spikuggi;
munnumbúnaður-inn sem á silungum.

I. kyn: Síld (clupea).

1. tegund: Kópsíld (c. sprattus).

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:53 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/5/0315.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free