- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / V. Smágreinar Dýrafræðislegs efnis, Ævisa A o. fl. /
104

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 104 —

2. tegund: Hafsíld (c. harœngus).

Sjáanlegar tennur bæði ofan- og neðan-fram;:
kjalrákin á kviðnum ómerkileg; hreistrið stórt;
kvið-uggarnir byrja undir miðjum bakugganum, og allir
uggarnir stuttir að tiltölu; höfuðið er ’/s úr allri
lengdinni, sundrákin bogin eftir hryggnum og
sporð-urinn með hvassri sýlingu.

Þanir: B. 17—19; kj. 14—16; eyr. 15—17; kv. 9;;
sp. 18—20.

Liturinn er fagurblágrænn á bakinu, og hitt allt
að mestu leyti silfurhvítt; bakuggi og sporður
dökk-leitur, og hinir uggarnir hvítir. Lengd mest 12
þuml.

Kópsíldin er miklu minni; niðurskolturinn er
lengri, hæðin V5 lengdarinnar; bakugginn stendur á
sjálfri miðjunni og kviðuggarnir byrja beint móts við
1. þön bakuggans; kviðurinn er með hvassri,
sag-tenntri mön, einkum fyrir framan kviðuggana; hreistrið
er stórt og kringlótt, laust og dettur hæglega af..
Sporðurinn mjög sýldur.

Þanir: B. 17; kj. 18; eyr. 15; kv. 7; sp. 19.

Bak og upphöfuð dökkblátt á lit með glógrænnii
slikju, tálknskýlur, hliðar og kviður silfurhvitt;
bakuggi og sporður dökkleitir; hinir uggarnir hvítir.

Önnur sveit: Kverkfætlingar (mal.subbrachii).

Kviðuggarnir eru niður-undan eyruggunum,
fram-undir kverk, og eru því einnig oft kallaðir
kverkugg-ar, og mjaðmarbeinin, sem þeir sitja á, eru aföst við.
herðabeinin.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:53 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/5/0316.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free