- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / V. Smágreinar Dýrafræðislegs efnis, Ævisa A o. fl. /
105

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 105 —

Fyrsta ætt: Þorskaættin (gadoidei).

I. kyn: Skreið (morrhua),
með 3 bakuggum og 2 kjaluggum, og einum
skegg-sepa á neðra skoltinum.

1. tegund: Þorskur, netjaþorskur (m.
vul-garis).

2. tegund: Þorskur, færaþorskur,
stútung-ur, þaraþyrsklingur, þyrsklingur (m. callarias).
Nöfnin stútungur, þyrsklingur og þaraþyrsklingur eiu
annars höfð í fleng um báðar þessar tegundir, fyr
en þær eru fullvaxnar.

3. tegund: Smáþyrsklingur (m. — —?).

4. tegund: Ýsa (m. œglefinus).

II. kyn: Upsar (merlangus).

Með þremur bakuggum eins og skreiðin, en
öngv-um skeggsepa.

1. tegund: Lýsa (merlangus vulgaris).

2. tegund: Upsi (m. carbonarius).

3. Gullupsi (/72. pollachius).

Efri skolturinn miklu lengri en neðri skolturinn;
bakið miklu beinna en kviðurinn; sundrákin bogin um
eyruggana og sporðurinn nokkuð sýldur.

Þanir: B. 12, 19, 15; kj. 24, 16; eyr. 19; kv. 6;
sp. 31.

Liturinn á bakinu mógrænn; hliðarnar fyrir
neð-an sundrákina silfurhvítar með gulleitum ílekkjum;
uggarnir mórauðir, með gulrauðri slikju á eyruggum
og kverkuggum og gullrauðum broddi. L. 12"—14".
Þessi íiskitegund á heima í Eystra-salti og í
norður-höfum við Svíaríkis-, Noregs- og Englands-strandir,

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:53 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/5/0317.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free