- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / V. Smágreinar Dýrafræðislegs efnis, Ævisa A o. fl. /
129

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 129 —

UM FLÓD OG FJÖRU.

<Eftir C. A. v. Schumacher. Sbr. Skandinavisk Folkckalender for 1843.)

Á öllum þeim ströndum, er liggja við úthafið og
önnur höf, þau er eiga nokkurn veginn frjálsa
sam-göngu við það, má sjá, að yfirborð sjávarins hækkar
á 6 stundum og liðugum 12 mínútum, og lækkar
aftur á jafn-löngu tímabili; fer þessum hræringum
sjáv-ärins sí og æ fram eftir sömu röð, svo ekki bregður
stórum út-af, nema svo sé, að einhverjar sérlegar
kringumstæður, t. a. m. langvinn hvassviðri, komi af
stað nokkurri óreglu. Meðan sjórinn er að hækka, köllum
vér a ð f a 11, og þegar yfirborð hans er sem hæst, heitir
flóð; aftur meðan sjórinn er að lækka, er kallað
út-fall, og fjara, meðan yfirborð hans er sem lægst. í
hvert sinn, sem aðfall og útfall skiptast á, munar ekki
til um hæð sjávarins svo sem áttung stundar; það
köllum vér háflóð og háfjöru, eður Liggjanda.

Að vísu eiga vindar og veðurstaða nokkurn þátt
í að auka og minnka þessar hræringar hafsins, en
ekki eru þær samt afleiðing vindanna, því þótt logn
sé og ládeyða og heiður himinn, skiptast flócS og
fjara á eftir hinni sömu röð og svo reglulega, að
segja má fyrir fram svo árum skiptir, hvernig þá og þá
muni standa á sjávarföllum, eins nákvæmlega og
stjörnu-fróðir menn geta sagt fyrir myrkva á sólu og tungli.

Regla sú, sem sjávarföllin eru sí og æ
viðbund-in, hlýtur að eiga sér einhverja orsök, sem er eins
regluleg og ævinn eins og þau. En til að komast að,
hver hún væri, þurfti langan tíma til að athuga sjáv-

9

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:53 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/5/0341.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free