Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 186 —
und, sbr. 24.—27.1., en „Spergula arvensis", nefnd að eins
skurfa. — 28. 1.; „Stellaria media" hefir þar heitið haugarfi
eða taðarfi, 2. tegundin ekki nefnd (svo), en hin 3. kölluð
lág-arfi. — Bls. 128, 1. 1.; „Arenaria crassiflora" o. s. frv. á að
vera „Stellaria crassiflora" o. s. frv. (prentvilla); hún er
köll-uð stjörnuarfi i Fl. Isl. Síðustu tegundirnar, „St. biflora" og
„St. cerastoides", ekki nefndar þar. Af sandategundunum, 5.—9.
1., er þar að eins nefndur skeggsandi, sömu nöfnum; „Arenaria
peploides" er þar nefnd Honchenya peploides, en sömu
islenzk-um heitum. Af músareyra, 10.—14. 1., er nefnd tegundin „c.
al-pinum" og 2 aðrar, sem ekki eru nefndar hér, c. nigrescens og
c. cæspitosum. — Af „blágresi", 18.—19. 1., er að eins nefnd
fyrri tegundin i Fl. Isl. — 20. 1.; „Hippuris vulgaris" er þar
nefnd lófótur. — 23. 1., „Veronica officinalis" er nefnd þar, og
er hún kölluð hárdepla, en hin tegundin er ekki nefnd. —
Sömu-leiðis er þar nefnd að eins fyrri tegundin af „Pingvicula" (24. 1.).
Bls. 129—138. — UM FLÓÐ OG FJÖRU. — Frumpr. i
Fjölni, VI., 44—54. — Höfundur fyrri hluta þessarar greinar,
Christian Andreas (von) Schumacher, var herforingi, en fékkst
einnig mikið við náttúrufræðisleg efni; hann var bróðursonur
hins ágæta, danska stjörnufræðings, Heinrichs Christians Sch.,
höfundar næstu greinar (bls. 141—144). — Hann var fæddur
1810 og dó 1854. — Síðari hlutinn er eftir Jónas sjálfan. — Bls.
137, 1. 1., „augsjáanlega", les „auðsjáanlega". — 9. 1.;
„Dün-kirchen", þýzka nafnið á hafnarborginni Dunkerque á
Norður-Frakklandi. — 11. 1.; „St. Malo", Saint-Malo, merkilegur
smá-bær á Norðvestur-Frakklandi (i héraðinu Ille-et-Vilaine).
Það-an hafa oft komið hingað skip á fiskveiðar. — 12. 1.;
„Góðvonar-höfða", Cabo da bona esperanza, er Jóhann II., konungur í
Portúgal, kallaði svo, suðvesturoddinn á Afríku.
Bls. 141—1U. — ALMYRKVI Á SÓLU í VÍNARBORG
8. DAG JÚLÍ-MÁNAÐAR 1842. — Frumpr. i Fjölni, VI., bls.
55—58. Höfundurinn er Heinrich Christian Sch., danskur
stjörnu-fræðingur, f. 3. Sept. 1780, d. 28. Des. 1850. Hann varð prófessor
í stjörnufræði við Hafnar-háskóla 1810. Hann hóf
landmæling-ar í Danmörku 1816 og var Björn Gunnlaugsson aðstoðarmaður
hans 1820—-22. Hann gaf út margar ágætar stjörnufræðislegar
bækur og tímarit, þar á meðal Astronomisches Jahrbuch 1836—
41 og 1843—44, sem þessi grein er þýdd úr. — Bls. 141, 15. 1. a.
n., „Fraunhofer", Josef von Fr., merkur þýzkur
sjóntækjafræð-ingur og ljósfræðingur. Varð prófessor við háskólann í München
1823 og herraður næsta ár. — Hann fæddist 1787 og var á
barns-aldri umkomulaus og bláfátækur. Árið 1801 hrundi yfir
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>