- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / V. Smágreinar Dýrafræðislegs efnis, Ævisa A o. fl. /
189

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

EFTIRMÁLI.

Mér finnst, að ég geti ekki lokiS við þessa útgáfu, af ritimi
Jónasar Hallgrímssonar, án þess að låta í Ijósi þakklæti mitt til
þeirra, sem hafa stuðlað að því, að hún var hafin og náði fram
að ganga. Verð ég þá jafnframt að segja nokkuð frá gangi þessa
máls frá uvphafi.

Þess skal þá fyrst getið, að þessi útgáfa hófst og komst til
minna afskifta fyrir tilstilli annara en mín. Jón Sigurðsson frá
Kallaðarnesi, sem nú er skrifstofustjóri alþingis, sendi
Bók-menntafélaginu 1915 tilboð um að sjá um útgáfu á bréfum og
ritgerðum eftir Jónas, ef það vildi taka, hana að sér. — Jóhann
Jóhannesson, bókútgefandi í Reykjavik, hafSi ráðið Jón
Sigurðs-son og Jón ritstjóra Ólafsson til að sjá um nýja útgáfu. af
Ijóð-mælum Jönasar og fleira eftir hann. Gaf Jóhann út Ijóðmælin í
1 bindi (3. útg.), og mun hafa ætlað að gefa út i 2. bindi
sendi-bréf og fleira, en féll frá, svo að ekki varð af útkomu þess. —
Bókmenntafélagið hafði tekið að sér 1. útgáfu Ijóðmæla Jónasar
og gefið þau út aftur (2. útg.) ásamt nokkru fleira eftir hann,
og þótti nú stjórn félagsins standa þvi næst að gefa út rit
Jönasar, en ekki einungis það af þeim, sem áformað hafði verið af
þeim Jóhanni. Var samþykkt (á stjórnarfundi 15. Des. 1915)
„að gefa út öll kvæði og rit Jónasar, þegar efni leyfa, og fela
Jóni Sigurðssyni, Matthiasi Þórðarsyni og Helga Jónssyni dr.
að sjá um útgáfuna með aðstoð forseta". — Nefnd þessi vann
dálitið að undirbúningi útgáfunnar næstu árin; Jón Sigurðsson
hafði þegar skrifað upp bréf Jónasar til Konráðs Gíslasonar og
Finns Magnússonar, flest, og sumt annað, og gerði nú skrá yfir
Ijóðmæli hans, bréf og ritgerðir, sem til þekktist í
handritasöfn-um Bókmenntafélagsins, Jóns Sigurðssonar (forseta),
Lands-bókasafnsins og Konrdðs Gislasonar (í safni Arna Magnússon-

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:53 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/5/0401.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free