Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 190 —
ar), og dr. Helgi Jonsson kynnti sér það, sem til er i
handrita-söfnunum hér af náttúrufræðilegum o. fl. ritgerðum eftir Jónas,
og skrifaði sumt af því upp, en ég gerði (1918) uppskriftir af
ýmsum bréfum og ritgerðum, sem voru i Höfn, gerði fullkomna
spjaldskrá yfir öll Ijóðmæli og annað, sem vera skyldi i 1. bindi
og bjó síðan textahefti þess undir prentun. Bókmenntafélagið
studdi nokkuð að þessum undirbúningi með fjárframlögum, en
hóf ekki prentun, og er það árið 1922, undir nýrri stjórn að miklu
leyti, réðist í útgáfu „Kvæðasafns eftir islenzka menn frá
mið-öldum og síðari öldum", er átti að verða stórt verk, hætti það við
útgáfu rita Jónasar.
Var nú útgáfunefndin laus allra mála við félagið, en mig
langaði til, að meira yrði úr útgáfunni en orðið var, og vildum
við dr. Helgi reyna að halda henni áfram, ef annar útgefandir
þ. e. kostnaðarmaður, fengist til að taka hana a5 sér í stað
Bók-menntafélagsins. Fór þó svo næstu árin, að enginn réðist í það
fyrirtæki. Þá fengum við dr. Helgi styrk 1924—25 úr
sáttmála-sjóði, báðum deildum hans, og nokkurn frá Bókmenntafélaginu,
til að halda áfram undirbúningi útgáfunnar, og þótt sá styrkur
entist fyrirsjáanlega ekki til undirbúnings allra ritanna,
ákváð-um við samt að bjóða kostnaðarmanni, ef fengist, handrit öll til
útgáfunnar ókeypis. En dr. Helgi féll frá, 2. Apríl 1925, án þes&
að lengra væri komið útgáfunni. Ég hélt þó áfram að vinna að
undirbúningi I. og II. bindis það ár og í byrjun hins næsta og
keypti uppskrift af dagbókinni frá 18U2, er koma skyldi í III.
ásamt öðrum dagbókum, sem ég hafði þegar áður skrifað upp
flestar, en hinn veitti styrkur beið þó að öðru leyti ósnertur í
sparisjóði. Loks tók stjórn Isafoldarprentsmiðju að sér
útgáf-una i Febrúar 1928 og hóf brátt prentun I. bindis; kom 1. hefti
þess út næsta ár, en athugasemdir mínar og skýringar við þaS
og síðan hin önnur bindi ritanna vildi ég låta bíða prentunar, unz
búið yrði að prenta texta hvers bindis. Að lokinni prentun
1-heftis I. bindis varð hlé á, unz prentun 1. heftis II. bindis hófst;
varð henni ekki lokið fyr en árið 1932. Þá tók þegar við prentun
1. heftis III. bindis. Hafði stjórn minningarsjóða Eggerts
Ólafs-sonar og Helga Jónssonar fyrir umsókn mina veitt
prentsmiðj-unni 1000 kr. úr þessum sjóðum til útgáfu þess og annara
nátt-úrufræðisrita Jónasar, og þar sem nú var nær þrotinn sá styrk-
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>